Metfjöldi umsókna um nám í HR
Aldrei hafa fleiri umsóknir borist um nám í Háskólanum í Reykjavík en fyrir haustönn 2024. Heildarfjöldi umsókna, að meðtöldum óyfirförnum umsóknum erlendis frá, er tæplega 4400 en var um 4200 fyrir haustönn 2023. Yfirfarnar umsóknir í ár eru 2894 en voru á sama tíma í fyrra 2871.
Umsóknarfrestur um grunnnám rann út í gær, 5. júní, og umsóknarfrestur um meistaranám rann út 30. apríl en opið er fyrir umsóknir um nám í Háskólagrunni til 15. júní. Því eru líkur á að heildartala umsókna hækki enn.
Fjöldi umsókna í grunnnám, meistaranám og doktorsnám er á pari við síðasta ár, en þá fjölgaði t.d. umsóknum í grunnnám mikið, og umsóknum um skiptinám og nám í Háskólagrunni fjölgar í ár. Þá eru ívið fleiri karlar á meðal umsækjenda eða um 53%.
Flestar umsóknir bárust um nám við viðskipta- og hagfræðideild og fjölgar umsóknum þar á milli ára um tæp 4%. Næstflestar umsóknir bárust um nám við verkfræðideild þar sem umsóknum fjölgar um tæp 16% á milli ára. Þá fjölgaði umsóknum um nám við iðn- og tæknifræðideild um rúm 10%.
„Það er mjög gleðilegt fyrir okkur í HR að sjá umsóknum fjölga eftir krefjandi vetur og ekki síst í ljósi þess að við erum nú eini háskólinn á Íslandi sem er fjármagnaður að hluta með skólagjöldum. Ég lít svo á að þetta sé einn besti vitnisburðurinn um það góða starf sem fer hér fram þar sem við leggjum allt okkar í að veita nemendum framúrskarandi menntun ásamt góðri og persónulegri þjónustu við bestu mögulegu aðstæður, þar sem allt er undir einu þaki,“ segir Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, sem hlakkar til að hitta nýnemana.
„Við erum ótrúlega spennt að taka á móti nýjum nemendum. Einhverjar deildir munu strax núna í júní bjóða nemum í heimsókn og svo erum við venju samkvæmt með skemmtilega nýnemadaga í ágúst. Ég hlakka svo sannarlega til að taka á móti þessu flotta fólki og veit að það mun auðga okkar góða samfélag hér í HR.“
///
Reykjavik University has received a record number for applications for the fall of 2024. The total number of applications, including unapproved applications from abroad, is close to 4400, compared to 4200 for the fall of 2023. Reviewed applications for 2024 are 2894, compared to 2871 at the same time last year.
The application deadline for undergraduate studies was yesterday, June 5, and the application deadline for graduate studies was April 30. Applications for Háskólagrunnur are open until June 15 so there is a possibility that the total number of applications will be even higher.
"We are really happy to see the increase in applications after a challenging winter and especially now when RU is the only university in Iceland that is partially funded with tuition fees. I think this is one of the best testimonies of the good work here at RU, where we put all our efforts into providing excellent education along with personal service in the best possible conditions, where everything is under one roof," says Ragnhildur Helgadóttir, president of Reykjavik University.
Dagsetning
Deila