Mikið lagt upp úr því að nemendum líði sem best á bókasafni HR
Eitt af því sem Háskólinn í Reykjavík leggur mikið upp úr er að bjóða nemendum framúrskarandi aðstöðu til náms og kennslu. Einn hluti af því er bókasafnið í HR sem er opið nemendum allan sólarhringinn.
Safnið býður upp á mjög góða og fjölbreytta aðstöðu fyrir nemendur til að sinna sínu námi, eins og einstaklingsbása í lokuðum þagnarrýmum, einstaklings- og hópaaðstöðu á svæðum þar sem má tala saman, hópavinnuherbergi og kósí stóla.
Fyrst og fremst rafrænt safn
Þá býður bókasafnið nemendum upp á aðgang að fræðilegu efni og er fyrst og fremst rafrænt safn þar sem aðgangur að mestu efninu er aðgengilegur hvar sem er. Allur safnkosturinn er á þeim fræðasviðum sem kennd eru í HR.

Nemendur geta fengið fræðslu hjá upplýsingafræðingum safnsins í m.a. heimildaleit, heimildanotkun og heimildaskráningu, auk þess sem hægt er að fá aðstoð við uppsetningu ritgerða og kennslu á Zotero, heimildaskráningaforritið sem auðveldar mörgum vinnuna við heimildanotkun. Ragna Björk Kristjánsdóttir, forstöðukona bókasafns HR, segir að því fyrr sem nemendur byrja að nýta sér þjónustu bókasafnsins, þeim mun sjálfstæðari verði þeir í námi sínu og skili betri ritgerðum.
Ragna segir það sína upplifun að andinn á bókasafninu sé góður og mikið sé lagt upp úr því að nemendum líði sem best þar. Liður í því að gera bókasafnið enn betra voru umfangsmiklar breytingar sem gerðar voru á húsnæði bókasafnsins árið 2023. Að sögn Rögnu hafði lítið breyst á bókasafninu síðan það flutti inn í rýmið Úranus árið 2010. Því var kominn tími á að gera húsnæðið aðeins huggulegra.

Mikil ánægja með þjónustu safnsins í þjónustukönnunum HR
„Gólfið var að hluta til teppalagt til að bæta næðið. Húsgögnum var skipt út til að búa til fjölbreyttari svæði. Bókahillum var fækkað til að búa til meira pláss fyrir nemendur. Skrifborðsstólar voru endurnýjaðir og rýminu var meira hólfaskipt. Í leiðinni var allt safnið gert mun huggulegra með fallegum innréttingum og lifandi blómum. Svörtum innréttingum var skipt út fyrir hlýlegri liti sem vonandi gerir safnið að meira aðlagandi svæði en það var áður. Margir nemendur eyða löngum tíma inn á bóksafninu og það er allt gert til þess að þeim líði sem best þar,“ segir Ragna.
Hún segir að starfsfólk safnsins sjái mikið af sömu nemendunum á svæðinu sem velji bókasafnið fram yfir önnur rými í húsinu.

„Yfirleitt er mikið og gott næði á safninu en stundum er mikið að gera og aðeins meira fjör, sérstaklega þegar það er verkefnavinnutörn. Á prófatímum er safnið mjög mikið notað og andrúmsloftið aðeins þyngra en þá er líka yfirleitt betra næði, því allir eru bara að einbeita sér að lesa fyrir próf.“
Undanfarin ár hefur mælst mikil ánægja með þjónustu bókasafns HR í þjónustukönnunum skólans; í þeirri nýjustu sem lögð var fyrir í júní 2024 sagðist yfirgnæfandi meirihluti nemenda vera ánægður með þjónustuna.

Dagsetning
Deila