Mikilvægt að leggja áherslu á eigin styrkleika
Þrjú ár eru síðan verkefninu Hvatasjóður var komið á laggirnar en markmið sjóðsins er að jafna aðgengi að námi við HR með því að styrkja útskrifaða framhaldsskólanemendur sem eiga sér annað móðurmál en íslensku til grunnnáms við háskólann. Styrkurinn felur í sér niðurfellingu á skólagjöldum við HR fyrsta skólaárið og er greiddur af Landsbankanum.
Árið 2025 hlutu styrk úr Hvatasjóði þær Dana Zaher El Deen K. Al Hennaw, BA í lögfræði og Diana Al Barouki, BSc í tölvunarfræði. Þær voru nýverið boðnar í heimsókn í Landsbankann þar sem Klara Steinarsdóttir, deildarstjóri fræðslu og þróunar í fræðsludeild Landsbankans, tók á móti þeim. Með í för voru einnig frá HR, Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir, verkefnastjóri atvinnulífstengsla, og Gréta Matthíasdóttir, sviðsstjóri nemendaþjónustu.Nemendurnir fengu innsýn í starfsemi bankans og skoðunarferð um nýjar starfstöðvar Landsbankans að Reykjastræti 6.
Þær Dana og Diana hvetja nemendur til að sækja um styrkinn. Auk þess að vera fjárhagslegur stuðningur veiti hann líka nemendum tækifæri til að fá innsýn í fyrirtæki eins og Landsbankann.
Mitt ráð til þeirra nemenda sem vilja sækja um er að vera einlægir og sýna skýrt fram á hver markmið þeirra séu. Það er mikilvægt að leggja áherslu á eigin styrkleika og útskýra hvernig styrkurinn getur hjálpað manni í námi. Ég myndi líka mæla með því að vanda umsóknina vel og gefa sér tíma í hana.
Segir Dana og Diana bætir við að mikilvægast sé að prófa að sækja um og hafa trú á sjálfum sér. Þær Dana og Diana koma báðar frá Sýrlandi og útskrifuðust í maí frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Diana varð semidúx skólans með meðaleinkunnina 9,38 og fékk viðurkenningu fyrir námsárangur í íslensku, spænsku og félagsgreinum og Dana var með meðaleinkunnina 9.18 og fékk viðurkenningu fyrir námsárangur í íslensku, spænsku og listgreinum.
Sjálfstraust og að takast á við áskoranir er lykillinn að árangri, auk þolinmæði, stöðugrar vinnu og áhuga. Að halda áfram þrátt fyrir erfiðleika og hafa gott jafnvægi milli náms og daglegs lífs skiptir miklu máli. Mér finnst líka mikilvægt að gera námið að jákvæðum hluta af lífinu og að það sé ekki bara álag.
Segir Diana og Dana tekur undir þetta og bætir við að fyrst og fremst sé það sjálfsagi og góð skipulagning sem skili góðum námsárangri. Ennig skipti miklu máli að hafa raunverulegan áhuga á námsefninu og leitast við að skilja efnið vel.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Hvatasjóð og er umsóknarfrestur til og með 5. júní.
Dagsetning
Deila