Mölbrjóta staðalímyndir um frumkvöðlastarf og nýsköpun
Verðlaunaafhending námskeiðsins Nýsköpun og stofnun fyrirtækja fór fram í Háskólanum í Reykjavík föstudaginn 15. maí síðastliðinn. Nýsköpun og stofnun fyrirtækja er einstakt, og jafnframt stærsta námskeiðið, sem kennt er í HR. Námskeiðið sitja 500 nemendur úr öllum deildum háskólans og vinna í hópum þvert á deildir háskólans.
Eitt af megin markmiðum okkar er að ekki bara brjóta, heldur mölbrjóta, þá staðalímynd að frumkvöðlastarf og nýsköpun sé bara fyrir ákveðinn hóp en ekki annan. Það að kunna að leysa vandamál, takast á við óvissu og hanna lausnir eru verkfæri sem nýtast fólki í öllu sem það tekur sér fyrir hendur.
Segir Ásgeir Jónsson, kennari við viðskipta- og hagfræðideild sem fer með yfirumsjón námskeiðsins.
Liðið sem hafnaði í fyrsta sæti í ár kallst Bravor. Liðið hannaði snertilaust túlkatæki fyrir heilbrigðisstofnanir sem auðveldar samskipti milli starfsfólks og sjúklinga á ýmsum deildum heilbrigðisstofnanna, þegar tungumál standa í vegi fyrir öruggri og hraðri þjónustu. Um er að ræða lausn þar sem staðbundin úrvinnsla tryggir persónuvernd og gagnaöryggi.

Liðið skipa þau Erna Sólveig Sverrisdóttir,nemi í heilbrigðisverkfræði,Helgi Hrafn Bergmann nemi í hagfræði og fjármálum, Inga Sól Kristjánsdóttir, nemi í viðskiptafræði, Jóhann Tómas Portal, nemi í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein og Krummi Poomi Gunnars, nemi í tölvunarfræði.
Þau segja hugmyndina hafa kviknað í upphafi áfangans þegar þau ræddu við hvort annað, vini og fjölskyldu um vandamál í samfélaginu sem væri áhugavert. Erna átti fyrst hugmyndina að því að skoða tungumálaörðugleika í heilbrigðisþjónustu eftir samtal við hjúkrunarfræðing í fjölskyldu hennar. Upp úr því ræddu liðsfélagar við ýmsa aðila í heilbrigðisgeiranum og sáu fljótt að vandamálið var enn stærra en þau áttu von á. Smám saman stækkaði hugmyndin og varð að lokum að Bravor. Þau hafa fengið góðar undirtektir úr ýmsum áttum við lausninni og hafa þegar hafið vinnu við að þróa hana lengra.

Liðið Lineo hreppti annað sætið fyrir Lineo, snjallsótthreinsi/þurrkvél og sérhæfða hreinsiklúta til þess að hjálpa notendum stoðtækja að forðast sársaukafullar húðsýkingar með húðvænu UV-C ljósi og efnum sem vernda stúfinn.
Liðið skipa þau Eyrún Inga Einarsdóttir, nemi í tölvunarfræði, Iðunn Soffía Agnadóttir,nemi í sálfræði, Sandra Diljá Kristinsdóttir, nemi í orkuverkfræði, Sigurður Steinsson, nemi í hátækniverkfræði og Stefán Þorri Magnússon, nemi í fjármálaverkfræði.
Í þriðja sæti var liðið Safe Sence sem hönnuðu litabreytandi límmiða innan á kjúklingaumbúðir sem breyta um lit þegar kjúklingur er orðinn skemmdur og eykur þannig matvælaöryggi.

Liðið skipa þau Auður Ísfold Geirsdóttir, nemi í heilbrigðisverkfræði, Daníel Máni Einarsson, nemi í vélaverkfræði, Guðmundur Ísak Bóasson, nemi í viðskiptafræði, Regína Sjöfn Sveinsdóttir, nemi í tölvunarfræði og Ágústa Helga Kristinsdóttir, nemi í lögfræði.
Ásgeir segir áfangann í ár hafa verið sérlega líflegan og mörg öflug teymi hafi tekið þátt.
Kennarahópurinn, sem hefur komið að námskeiðinu árum saman, var sammála um að aldrei hafi verið jafn mikið af frambærilegum hugmyndum og flottum frumgerðarsmíðum.
Segir Ásgeir en á námskeiðinu vinna nemendur saman í hópum undir handleiðslu kennara og sérfræðinga að þróun eigin viðskiptahugmyndar. Námskeiðið hefur reynst frábær stökkpallur fyrir marga, unga frumkvöðla innan HR sem í framhaldinu hafa haldið áfram að þróa hugmyndir sínar.
Dagsetning
Deila