Norræn ungmenni tókust á við flóknar áskoranir
Nordic Case Challenge fór fram í Háskólanum í Reykjavík dagana 8.–12. mars. Nordic Case Challenge byggir á samstarfi háskóla og fyrirtækja þar sem markmiðið er að tengja fræðilega þekkingu við hagnýtar aðstæður. Keppnin veitir nemendum tækifæri til að vinna í teymum, takast á við flókin verkefni og kynnast nemendum frá öðrum löndum. Að þessu sinni unnu nemendur meðal annars með verkefni frá íslensku fyrirtækjunum Carbfix og Alvotech.

Í ár tóku þátt lið frá 10 norrænum háskólum að Háskólanum í Reykjavík meðtöldum. BI, NHH, NTNU og Agder frá Noregi, CBS og Aarhus frá Danmörku, SAMK og LAB frá Finnlandi og Lund frá Svíþjóð. Nemendur leggja mikla vinnu á sig í undirbúningi fyrir keppnina undir leiðsögn þjálfara frá hverjum skóla.

Nemendur unnu áskorun frá Carbfix í blönduðum teymum en kepptu svo til úrslita við að leysa áskorun frá Alvotech. Það var NTNU sem að endingu stóð uppi sem sigurvegari en Aarhus University varð í 2.sæti og LAB í því þriðja.

Stefán Drengsson, framleiðslustjóri miðlunar hjá Alvotech, fylgist með nemendum kynna afrakstur krefjandi verkefnis.
Stefán Drengsson hjá Alvotech fylgdist með nemendum kynna afrakstur vinnu sinnar en þeir fengu krefjandi verkefni frá fyrirtækinu. „Í stuttu máli snerist áskorunin um það hvernig fyrirtækið gæti brugðist við nýjum reglugerðum um auknar kröfur til notkunar endurnýjanlegra efna í lyfjapökkun, og hvernig slík innleiðing gæti farið fram á næstu fjórum árum,“ sagði Stefán. „Það sem kom skemmtilega á óvart var hversu vel nemendurnir náðu utan um áskorunina á svo skömmum tíma. Þau sýndu góða gagnasöfnun, skýra framsetningu og stóðu sig vel í að svara spurningum. Þau höfðu aðeins 15 klukkustundir til umráða, sem er ekki mikill tími fyrir jafn yfirgripsmikla áskorun og þessa sem þau höfðu ekki séð áður,“ sagði Stefán að lokinni keppni.

Jón Helgi Guðmundsson, Karen Nordquist Ragnarsdóttir, Orri Einarsson og Viktoría Ósk Kjærnested kepptu fyrir hönd HR og stóðu sig frábærlega. Jón Helgi var í einu sigurliðanna í Carbfix-áskoruninni og lenti lið HR í öðru sæti í undanúrslitum í Alvotech-áskoruninni, á móti NTNU sem að endingu vann keppnina.

Dagsetning
Deila