Ný námsleið í hönnunar- og vörutæknifræði
Tæknifræðideild mun í haust bjóða upp á nýja námsleið í hönnunar- og vörutæknifræði. Í hönnunar- og vörutæknifræði munu nemendur vinna með hugmyndir og læra að tengja saman skapandi hugsun og hagnýta afurð. Lögð verður áhersla á að þróa lausnir sem hafa raunverulegt notagildi og geta orðið að verðmætum vörum eða þjónustu.
Námið hentar þeim sem hafa áhuga á nýsköpun og vilja læra að nota aðferðarfræði vöruhönnunar og vöruþróunar til að skapa lausnir sem bæta líf fólks og samfélags.

Fagstjóri nýju námsleiðarinnar í hönnunar- og vörutæknifræði er Sigríður Heimisdóttir, vöruhönnuður. Um nýju námsleiðina segir hún:
“Í heimi stöðugra tæknibreytinga þá er gríðarleg þörf fyrir hæfni þar sem greiningarhugsun og sköpun eru í fyrirrúmi. Ég tel mikla þörf fyrir nám sem leggur áherslu á þessa þætti og tengir þá raunveruleikanum. Námsleið þar sem hugmyndir og samskipti eru virkjuð og kenndar eru aðferðir við að koma mikilvægu hugverki og hugmyndum í raunveruleg verðmæti og vörur sem raungerast í framleiðslu og ná á markað."
Áhersla verður lögð á samvinnu við atvinnulíf og innan námsins er bæði starfsnám og möguleiki á skiptinámi við erlenda háskóla. Á námstímanum geta nemendur undirbúið sig fyrir framhaldsnám bæði hérlendis og erlendis, til dæmis innan HR í „Stjórnun nýsköpunar MSc“ við viðskipta- og hagfræðideild, í vöruhönnun eða innan verkfræði þar sem framhaldsnám er í boði á þessu sviði.
Námið er 210 ECTS eininga, 3 ½ árs BSc nám í tæknifræði og byggir á grunni raungreina og faggreina. Að námi loknu geta nemendur sótt um lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur.
Hægt verður að sækja um námið á heimasíðu háskólans þegar opnað verður fyrir umsóknir 5. febrúar nk. Tæknifræðideild áskilur sér rétt til að takmarka inntöku í námið.
Dagsetning
Deila