Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
15. júní 2026

Ný stjórn HR og nýtt háskólaráð komu saman til fyrstu funda nú í júní

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólans í Reykjavík, sem kjörin var á aðalfundi HR þann 29. apríl 2026, fór fram föstudaginn 12. júní í HR.

Frá vinstri: Sigurður Hannesson, Svafa Grönfeldt, Tanya Zharov, Björn Brynjúlfur Björnsson og Ragnhildur Helgadóttir.

Tanya Zharov, lögfræðingur er nýr formaður stjórnar og tekur við af Guðbjörgu Eddu Eggertsdóttur, sem stígur nú úr stjórn. Svafa Grönfeldt, prófessor og sviðsstjóri nýsköpunar MITdesignX kemur ný inn í stjórn HR. Aðrir stjórnarmenn eru Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Efri röð frá vinstri: Ragnhildur Helgadóttir, Hjálmar Gíslason, Andri Þór Guðmundsson og Jón Ólafur Halldórsson. Neðri röð frá vinstri: Anna Hrefna Ingimundardóttir, Borghildur Eiríksdóttir, Brynja Baldursdóttir og Tanya Zharov.

Þá fundaði nýtt háskólaráð HR í dag. Í ráðinu sitja: Tanya Zharov, lögfræðingur og formaður stjórnar HR, Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofu, Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, Hjálmar Gíslason, stofnandi og forstjóri GRID, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Valgerður Hrund Skúladóttir, verkfræðingur og Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins.

Nánar má lesa um hlutverk stjórnar og háskólaráðs HR hér.

15. júní 2026
Nýjustu fréttirnar