Nýr fræðsluvefur HR: Verðmætt safn þekkingar fyrir íþróttahreyfinguna
Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík hefur opnað fræðsluvef sem sameinar fjölbreytt fræðsluefni um íþróttir, þjálfun og heilsu. Þar er að finna fyrirlestra, kennslumyndbönd og hlaðvarpsþætti. Efnið er öllum opið og aðgengilegt með leit og efnisflokkum.
Á síðustu tíu árum hefur íþróttafræðideildin staðið fyrir og tekið þátt í fjölmörgum fræðsluviðburðum, bæði á eigin vegum og í samstarfi við helstu hagaðila íþróttahreyfingarinnar. Þar má meðal annars nefna ÍSÍ, ÍBR, UMFÍ, KKÍ, KSÍ, GSÍ og FSÍ. Margir þessara viðburða hafa verið teknir upp og geyma upptökurnar því verðmæta þekkingu og reynslu innlendra og erlendra sérfræðinga.
Á vefnum er einnig að finna kennslumyndbönd, þáttaraðir og hlaðvörp en deildin heldur úti tveimur hlaðvörpum, Íþróttarabbi HR og RU Sport Psych Podcast.
Hafrún Kristjánsdóttir, deildarforseti íþróttafræðideildar HR, segir miðlun þekkingar vera mikilvægan hluta deildarinnar. „Sú miðlun nær ekki aðeins til nemenda og vísindasamfélagsins heldur samfélagsins alls. Nýi fræðsluvefurinn okkar er liður í því að gera þekkingu aðgengilega og styðja við öflugt íþróttastarf.“

Efnisflokkun, leit og síur auðvelda gestum að finna efni eftir áhugasviði og þörfum. Safnið getur meðal annars nýst við kennslu, á þjálfaranámskeiðum, í fræðslustarfi íþróttafélaga og til sjálfsnáms. Það er ætlað þjálfurum, kennurum, íþróttafólki, foreldrum, nemendum og öllum öðrum sem vilja auka þekkingu sína á íþróttum.
Vefurinn er í stöðugri vinnslu þar sem efni mun jafnt og þétt bætast inn.
Öll eru hvött til að skoða safnið, nýta efnið og deila því áfram.
Dagsetning
Deila