Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
6. febrúar 2025

Ómissandi færni fyrir leiðtoga framtíðarinnar

Þegar Guðrún Högnadóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Opna háskólans árið 2008 réðst hún í það verkefni að koma stjórnendamarkþjálfun inn í kennsluskrána. Stjórnendamarkþjálfun eða Executive Coaching hefur nú verið kennd við Opna háskólann frá árinu 2010 í samvinnu við Coach U í Bandaríkjunum. Stofnunin var sett á fót árið 1992 og er leiðandi á heimsvísu í kennslu í markþjálfun.

Guðrún komst í kynni við Cheryl Smith, sem í dag kennir við Opna háskólann, á námskeiði í London. Cheryl var einn fyrsti markþjálfinn til að hljóta viðurkenningu ICF (International Coach Federation) með hæstu vottunina Master Certified Coach (MCC).

Námskeiðið hafði djúpstæð áhrif á mig og þegar ég tók við starfinu hjá Opna háskólanum kom ekki annað til greina en að leita til Cheryl um möguleika á samstarfi. Stjórnendamarkþjálfun á borð við þessa var þá alveg ný af nálinni hérlendis og því talsverð áskorun að kynna hana inn í fremur íhaldssamt, íslenskt vinnuumhverfi. Það sem greiddi götu okkar var það að strax í upphafi settum við markið hátt og höfðum fagmennsku í fyrirrúmi.

Talið berst að hugmyndafræðinni að baki stjórnendaþjálfunar hjá Coach U og segir Cheryl ákveðið hugarfar þar lykilatriðið.

Þjálfunin byggist á því að efla og styrkja ákveðið hugarfar með því m.a. að efla færnina við að hlusta, spyrja spurninga og takast á við áskoranir. Markþjálfun byggir á þeirri trú að fólk búi sjálft yfir þeim svörum sem það þarfnast og er árangursríkust þegar því er hjálpað við að móta og fylgja eftir eigin framtíðarplönum. Þjálfunin skilar því að sem stjórnandi áttu betra með að byggja upp traust og nálgast teymið þitt á jafningjagrundvelli. Það hefur sýnt sig að þú færð síður fólk í lið með þér með því eingöngu að stjórna og stýra. Í raun á ég erfitt með að ímynda mér að vera góður stjórnandi árið 2025 án þess að búa yfir góðri markþjálfunar færni.

Hornsteinn í námsframboði Opna háskólans
Linda Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri námsins, segir það vera hornstein í námsúrvali Opna háskólans og mikil þörf sé á slíkri þjálfun.

Við lítum á námið sem svar við þeirri ósk að fólk í stjórnendastöðum búi yfir tilfinningagreind og tileinki sér grósku hugarfar. Tækninni fleygir fram og við þurfum að læra hvernig hún nýtist okkur en samtímis verðum við að efla okkar mannlegu þætti. Við heyrum frá nemendum okkar að námið hafi gert þau að betri stjórnendum og að því loknu eigi þau auðveldara með að hjálpa starfsfólkinu sínu við að leysa ýmis vandamál og áskoranir.

Stjórnendamarkþjálfun verði hluti háskólanáms

Cheryl segir að með tilkomu gervigreindar reiði enn meira á að við getum sýnt okkar mannlegu hliðar.

Framtíðarsýnin er sú að markþjálfun verði hluti af námskrá háskóla og kennd við allar deildir í einhverju formi. Með tilkomu gervigreindar, þar sem mikið af hversdagslegum verkefnum verða leyst með aðstoð tölvu, reiðir á að við verðum enn betri í að sýna okkar mannlegu hliðar.

Þær Linda og Guðrún taka undir þetta og segja aðferðina vera orðna mun útbreiddari og viðurkenndari nú en áður. Linda nefnir sem dæmi að víða megi sjá áhrif stjórnendamarkþjálfunar innan stjórnendanámskeiða í dag. Guðrún bætir við að ánægjulegt væri að sjá meira af rannsóknum á stjórnendamarkþjálfun innan háskólans sem myndi festa aðferðina enn betur í sessi.

6. febrúar 2025
Nýjustu fréttirnar