Opið fyrir umsóknir um styrki til náms úr Hvatasjóði
Háskólinn í Reykjavík auglýsir eftir umsóknum um styrki til náms úr Hvatasjóði. Umsóknarfrestur er til 5. júní nk.
Sjóðurinn er samstarfsverkefni HR og Landsbankans en hlutverk sjóðsins er að jafna aðgengi að námi við HR með því að styrkja útskrifaða framhaldsskólanemendur, sem eiga sér annað móðurmál en íslensku.
Við stofnun Hvatasjóðs voru heimsmarkmið Sameinuðu þjónanna höfð að leiðarljósi, þá sérstaklega fjórða markmiðið; “Menntun fyrir öll – tryggja þarf jafnan aðgang allra að góðri menntun og stuðla að tækifærum allra til náms alla ævi”.
Við hvetjum öll þau sem hafa annað móðurmál en íslensku og hafa útskrifast úr framhaldsskóla til að kynna sér fjölbreytt námsúrval í HR og til að sækja um styrkinn. Við val á styrkhöfum er tekið mið af námsárangri, fjölbreytileika og þátttöku nemenda á öðrum sviðum, t.d. íþróttum, tómstundastarfi og sjálfboðavinnu. Styrkurinn felur í sér niðurfellingu á skólagjöldum fyrsta árið í grunnnámi.
Umsókn um styrk skal senda á netfangið atvinnulif@ru.is, merkt “Hvatasjóður”.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn um styrk:
- Kynningarbréf (hámark 500 orð)
- Meðmælabréf frá kennara eða náms- og starfsráðgjafa skóla umsækjanda
- Yfirlit yfir námsferil

Dagsetning
Deila