Prófaðu að vera HR-ingur og finndu þína leið
Það er stórt skref og valdeflandi að velja sér háskólanám. Þetta vita þær Hildur Katrín Rafnsdóttir og Stella Ólafsdóttir, hjá Nemendaráðgjöf HR, vel en þær munu flytja fyrirlesturinn; Hver er rétta leiðin fyrir mig? á Háskóladeginum 2026 sem fram fer laugardaginn 28. febrúar kl. 12:00-15:00. Á Háskóladeginum verður í boði að spjalla við nemendur og starfsfólk um allt sem viðkemur námi við HR.
Í fyrirlestrinum munu þær Hildur Katrín og Stella fara yfir val á háskólanámi og ræða um þau hagnýtu tól og tæki sem verðandi háskólanemar geta nýtt sér á því spennandi ferðalagi sem námsval er. Þær Hildur Katrín og Stella munu deila með áheyrendum nokkrum skotheldum ráðum og trixum sem munu hjálpa þeim áleiðis á réttan áfangastað.
Fyrir þau sem hafa áhuga á mörgum og jafnvel ólíkum fögum er vert að benda sérstaklega á opnar kennslustundir í öllum deildum HR. Þar verður hægt að fá innsýn í það sem kennt er í viðkomandi fagi. Engin þörf er á skráningu en allar nánari upplýsingar má nálgast hér.
Einnig verða í boði skipulagðar gönguferðir um skólann auk þess sem nemendaklúbbar HR kynna starfsemi mína. Þeir eru /sys/tur, hagsmunafélag kvenna og kvára í tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, RU racing sem samanstendur af nemendum í verkfræði og tæknifræði og RU Robotics, vélmennaklúbbur HR.
Allir háskólar landsins standa saman að Háskóladeginum og er tilgangurinn að kynna fjölbreytt námsframboð á Íslandi.
Í Háskólanum í Reykjavík munu eftirtaldir háskólar, auk HR, kynna námsframboð sitt:
- Háskólinn á Akureyri
- Háskólinn á Bifröst
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Listaháskóli Íslands
Við sjáumst á Háskóladeginum 2026 í HR!
Dagsetning
Deila