Háskóladagurinn 2026
Komdu í opnar kennslustundir og skoðaðu Háskólann í Reykjavík
Háskóladagurinn 2026 fer fram hér í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 28. febrúar frá kl. 12:00 til 15:00. Allir háskólar landsins standa saman að Háskóladeginum og er tilgangurinn að kynna fjölbreytt námsframboð sem í boði er á Íslandi.
Boðið verður upp á opnar kennslustundir í öllum deildum HR og fara þær fram í stofum M101 og V101. Til þess að taka þátt þarf einungis að mæta og engin þörf er á skráningu.
Gestum og gangandi gefst tækifæri til að spjalla við nemendur og starfsfólk um allt sem viðkemur námi í HR. Eins býðst áhugasömum að skella sér í gönguferð um bygginguna og skoða frábæra aðstöðu til náms og kennslu.
Dagskráin í Háskólanum í Reykjavík er eftirfarandi:
👉 12:10 í stofu V101 | Hver er rétta leiðin fyrir mig?
Nemendaráðgjöf HR fer yfir val á háskólanámi
👉 12:30 í stofu M101 | Hvernig virka sveiflur?
Opin kennslustund í verkfræði:
Sveiflur er mikilvægt hugtak í eðlisfræði og við sjáum þær alls staðar í kringum okkur þegar ýtt er við kerfum og þau leitast við að komast aftur í jafnvægi. Í fyrirlestrinum verður farið í það hvernig eðlisfræðin útskýrir sveiflur og við prófum að gera einfaldar sveiflutilraunir og skoðum samanburðinn við fræðin.
👉 12:30 í stofu V101 |
Opin kennslustund í lögfræði: Lögfræði og gervigreind
12:45 er farið í skipulagða gönguferð um skólann
👉 13:00 í stofu M101 | Grundvallaratriði litafræði, áhrif lita og notkun í hönnun og vöruþróun.
Opin kennslustund í tæknifræði:
Farið verður yfir grundvallaratriði litafræði og útskýrt hvað litir í rauninni eru. Við ætlum að skoða hvaða áhrif litir hafa og hvernig þeir eru notaðir á meðvitaðan hátt í hönnun og vöruþróun. Það er margt í kringum okkur, sem við tökum sem sjálfsögðum hlut, sem hefur áhrif á okkur og við ætlum að fara yfir nokkra af þeim þáttum.
👉 13:00 í stofu V101 | Réttarsálfræði
Opin kennslustund í sálfræði
13:15 er farið í skipulagða gönguferð um skólann
👉 13:30 í stofu M101 | Kerfishugsun í leikjahönnun
Opin kennslustund í tölvunarfræði:
Í tölvunarfræði hönnum við og smíðum tölvukerfi fyrir alls konar notendur og aðstæður þ.m.t. tölvuleiki. Við hönnum reglur, skilgreinum hvað er leyfilegt og hvað breytist, og hvernig kerfin bregðast við. Í þessum fyrirlestri skoðum við hvernig leikjahönnun nýtir kerfishugsun til að gera hugmyndir áþreifanlegar.
👉 13:30 í stofu V101 | Næring íþróttafólks
Opin kennslustund í íþróttafræði:
Fjallað verður um mikilvægi hennar og hvernig hún er tímasett
13:45 er farið í skipulagða gönguferð um skólann
👉 14:00 í stofu M101 | Af hverju skiptir stjórnun máli?
Opin kennslustund í viðskipta- og hagfræði
👉 14:00 í stofu V101 | Hver er rétta leiðin fyrir mig?
Nemendaráðgjöf HR fer yfir val á háskólanámi
14:15 er farið í skipulagða gönguferð um skólann
Í Háskólanum í Reykjavík munu eftirtaldir háskólar, auk HR, kynna námsframboð sitt:
- Háskólinn á Akureyri
- Háskólinn á Bifröst
- Landbúnaðarháskóli Íslands
- Listaháskóli Íslands
Nánar um Háskóladaginn hér.
Verið öll velkomin!
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.