Ráðstefna helguð rannsóknum innan knattspyrnuheimsins
Ráðstefnan Nordic Football Research Conference 2025 var haldin nú í maí í samstarfi HR, KSÍ og knattspyrnusambanda Norðurlandanna. Þar komu saman sérfræðingar á sviði þjálfunar, frammistöðugreiningar og sálfræði fyrir knattspyrnu en aðal fyrirlesarar voru þeir Andriy Shevchenko og Geir Jordet.

Úkraínski fótboltamaðurinn Shevchenko er flestum kunnur en hann er einn fremsti framherji heims af sinni samtíð og hefur leikið með AC Milan og Chelsea auk þess að spila með úkraínska landsliðinu. Eftir að hann setti skóna á hilluna snéri hann sér að þjálfun og leiddi úkraínska landsliðið. Hann þykir hafa einstakt sjónarhorn á íþróttina og deildi reynslu sinni og sýn með gestum ráðstefnunnar.

Dr. Geir Jordet er leiðandi alþjóðlegur sérfræðingur í fótboltasálfræði og leggur áherslu á ákvarðanatöku, forystu og frammistöðu undir álagi. Hann er prófessor við Íþróttaháskólann í Noregi og hafa rannsóknir hans m.a. snúið að hlutverk sjónrænnar skynjunar og líkamstjáningar í leikjum á afreksstigi.

Ráðstefnan heppnaðist frábærlega og það var sérstaklega gaman að fá þá Andriy og Geir til að fjalla um ólíkar hliðar fótboltans. Ráðstefnan er líka gott dæmi um hið öfluga samstarf sem íþróttafræðideild á við bæði KSÍ og erlenda fræðimenn. Félagar okkar í SudDansk háskólanum, í samstarfi við danska knattspyrnusambandið, munu nú taka við keflinu af okkur og halda ráðstefnuna næst.
Segir Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, deildarforseti íþróttafræðideildar.
Dagsetning
Deila