Ráðstefna lagadeildar um alvarleika kyrkinga og þá lífshættu sem þær skapa
Tæplega 300 manns sóttu ráðstefnu um kyrkingartak sem fór fram á vegum lagadeildar Háskólans í Reykjavík 27. maí sl. Ráðstefnan var haldin í samstarfi við dómsmálaráðuneytið, Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu, Ríkislögreglustjóra, Bjarkarhlíð, Kvennaathvarfið og Stígamót.
Lykilfyrirlesari á ráðstefnunni var Gael Strack, ein af stofnendum samtakanna Alliance for Hope Int. Innan samtakanna eru Landssamtök þolendamiðstöðva, en íslensku þolendamiðstöðvarnar (Bjarkarhlíð, Bjarmahlíð, Sigurhæðir og Suðurhlíð) byggja á því líkani, auk þess sem samtökin reka sérstakt Fræðslu- og menntasetur um kyrkingar, Training Institute on Strangulation Prevention.
Orðspor Gael hefur breiðst langt út fyrir landsteinana. Hún er eftirsóttur fyrirlesari um allan heim, auk þess sem hún heldur námskeið og vinnustofur fyrir fagfólk. Gael, sem er lögfræðingur að mennt, starfaði áður sem saksóknari í San Diego (San Diego City Attorney‘s Office). Hún hefur ritað fjölda bóka og fræðigreina um kyrkingar, alvarleika þeirra og lífshættulegar afleiðingar.
Ráðstefnan hófst með ávarpi Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra. Í kjölfarið flutti Gael Strack erindi, sem hún nefndi: Kyrkingartak: Lokaviðvörunin. Í því fjallaði hún um alvarleika kyrkinga og þá lífshættu sem þær skapa, einkenni gerenda sem beita kyrkingartaki og tengsl kyrkinga við önnur alvarleg ofbeldisbrot, þar á meðal morð á lögreglumönnum.
Að loknu hádegishléi fjallaði Pétur Guðmannsson, réttarlæknir á Landspítala og lektor við læknadeild HÍ, um réttarlæknisfræðilega þætti kyrkingartaks, túlkun áverka og lífshættu. Pétur hefur rannsakað sérstaklega áverka á hálsi og aðstoðað lögreglu við fjölda rannsókna á ofbeldisverkum þar sem kyrkingartaki hefur verið beitt.
Því næst fjallaði Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR, um rannsókn á dómum í ofbeldismálum þar sem kyrkingartaki hefur verið beitt.
Dagurinn endaði á pallborðsumræðum með þátttöku Höllu Bergþóru Björnsdóttur, nýskipaðs ríkislögreglustjóra, Jennýjar Kristínar Valberg, teymisstýru Bjarkarhlíðar, Lindu Drafnar Gunnarsdóttir, framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins og Drífu Snædal, talskonu Stígamóta.
Þá stóð Gael fyrir vinnustofu fyrir fagfólk innan réttarvörslukerfisins og fagfólk sem sinnir þjónustu og stuðningi við þolendur fimmtudaginn 28. maí í HR. Um 60 manns sóttu vinnustofuna.
Hér má nálgast viðtal við Gael í fréttatíma RÚV:
Dagsetning
Deila