Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
30. október 2026

Rannsókn á öldrun heilans hlaut verðlaun fyrir besta veggspjald

Rannsakendur við Háskólann í Reykjavík og Tor Vergata-háskóla í Róm hlutu verðlaun fyrir besta veggspjaldið á MetroXRAINE 2026, alþjóðlegri ráðstefnu IEEE í Chemnitz í Þýskalandi sem fór fram fyrr í mánuðinum. Veggspjaldið fjallar um hvernig heilavirkni er ólík eftir aldri þegar fólk heldur jafnvægi í sýndarveruleika. 

Veggspjaldið ber heitið Age-Related Modulation of EEG Microstate Temporal Dynamics in an Immersive Virtual Reality Paradigm. Höfundar eru Carmine Gelormini, Federica Pescaglia, Ida Maruotto, Halldór Jónsson jr, Giorgio Di Lorenzo og Paolo Gargiulo. Þau starfa við Heilbrigðistæknisetrið (IBNE) við Háskólann í Reykjavík og Università di Roma Tor Vergata.

Teymið hefur fengið fræðigrein með sama heiti samþykkta til birtingar og verður hún birt á næstu mánuðum.

Veggspjaldið.

Hvað var rannsakað? 

Heilinn breytist með aldrinum, bæði í uppbyggingu og hvernig svæði hans tengjast. Fyrri rannsóknir á því hvernig örástand (e. microstate) breytist með aldrinum hafa nær eingöngu verið gerðar þegar fólk hvílir sig. Hér var spurt hvað gerist þegar fólk þarf að halda jafnvægi. 

Heilalínurit (e. EEG) mælir rafvirkni heilans með nemum á höfuðleðrinu. Þegar merkið er skoðað frá einu augnabliki til annars skiptist það í fá, endurtekin mynstur sem kallast örástand. Hvert þeirra varir í brot úr sekúndu áður en það næsta tekur við. 

Í rannsókninni var stuðst við BioVRSea-prófið. Í því standa þátttakendur á hreyfanlegum palli með sýndarveruleikagleraugu og heilalínuritshettu og horfa á sýndarhaf. Prófið hefst á tveggja mínútna hvíld í kyrrstæðu umhverfi. Síðan fylgja 40 sekúndur í sjávarumhverfi án hreyfingar, tvær mínútur þar sem bæði sjávarumhverfið og pallurinn hreyfast og loks 40 sekúndur án hreyfingar. Alls tóku 104 þátttakendur á aldrinum 20–73 ára þátt: 37 á aldrinum 20–30 ára, 31 á aldrinum 31–50 ára og 36 á aldrinum 52–73 ára. 

Vottorðið fyrir besta veggspjaldið á MetroXRAINE 2026 í Chemnitz. © 2026 IEEE. Personal use of this material is permitted. Permission from IEEE must be obtained for all other uses, in any current or future media, including reprinting/republishing this material for advertising or promotional purposes, creating new collective works, for resale or redistribution to servers or lists, or reuse of any copyrighted component of this work in other works.

Niðurstaðan 

Eitt mynstur skar sig úr. Mynstur C varði lengur hjá yngra fólki en hjá miðaldra og eldra fólki, í öllum fjórum fösum prófsins. Hreyfing pallsins og sjónáreitið breyttu ekki mælingunum en aldursmunurinn hélst. 

Höfundarnir benda á að mynstur C geti endurspeglað stöðugan bakgrunnsham heilans frekar en viðbrögð við kröfum verkefnisins. Þetta er túlkun sem þarf að prófa frekar. Næsta skref er að kanna hvort aldursáhrifin nái einnig til klínísks ástands í sama prófi. 

„BioVRSea-prófið er nálgun sem lofar góðu þegar kemur að því að rannsaka virkni heilaneta í krefjandi hreyfiverkefnum sem líkja vel eftir raunverulegum aðstæðum,“ segir Paolo Gargiulo, forstöðumaður Heilbrigðistæknisetursins og prófessor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík 

Áður hefur verið greint frá BioVRSea-prófinu í grein um Parkinson sjúkdóminn sem birtist á Heimi vísindanna á vef HR. Framangreind rannsókn sem hér var sagt frá nær til þátttakenda á mismunandi aldri en ekki til sjúkdóma.  Rannsóknin var styrkt af Rannís (Rannsóknasjóði, Grant of Excellence nr. 239612-051) og rannsóknarsjóði Landspítala. 

30. október 2026
Nýjustu fréttirnar