Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
28. október 2026

Rannsókn dósents frá HR í virtu vísindatímariti: Símabann eitt og sér bætir ekki andlega líðan ungmenna

Rannsókn  leidd af dr. Þórhildi Halldórsdóttur, dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og klínískum barnasálfræðingi, hefur verið birt í hinu virta vísindatímariti JAMA Network Open.

Niðurstöður rannsóknarinnar, sem var unnin af teymi íslenskra og norður-amerískra vísindamanna, gefa til kynna að bann við notkun á símum í skólum bæti ekki líðan ungmenna með marktækum hætti.

„Áhyggjur af líðan ungmenna hafa gert símabann að aðlaðandi úrræði fyrir skóla enda er það sýnilegt og tiltölulega einfalt í framkvæmd. Niðurstöður okkar benda hins vegar til þess að símabann eitt og sér dugi ekki til að bæta líðan ungmenna,“ segir Þórhildur.

Í rannsókninni var notast við gögn úr könnunum Rannsókna og greiningar sem lagðar voru fyrir á landsvísu á árunum 2016, 2018 og 2023. Alls byggði rannsóknin á svörum 24.000 unglinga á aldrinum 13–15 ára úr 70 skólum. Af þessum 70 skólum innleiddu 22 skólar símabann milli 2018 og 2023. Breytingar á líðan nemenda voru athugaðar á milli áranna og svo var borið saman hvort þessar breytingar á líðan væru mismunandi eftir því hvort skólinn innleiddi símabann eða ekki.

Þórhildur Halldórsdóttir, dósent við sálfræðideild HR og klínískur barnasálfræðingur.

Engar marktækar breytingar á líðan

Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að engar marktækar breytingar urðu á þunglyndiseinkennum, kvíða, pirringi eða andlegri vellíðan í skólum sem innleiddu símabann, samanborið við skóla sem gerðu það ekki.

Aðrar breytur sem voru skoðaðar voru til að mynda tíðni eineltis í netheimum og í eigin persónu, sem breyttist ekki. Ekki var heldur munur á því hversu mikinn félagslegan stuðning unglingar upplifðu eftir því hvort að símabann var innleitt eða ekki.

Ein yfirgripsmesta rannsóknin til þessa

Þórhildur segir skóla víða um heim hafa innleitt bann á símanotkun nemenda á skólatíma, meðal annars vegna áhyggna af áhrifum snjallsíma á líðan unglinga: „Fram að þessu hafa þó flestar rannsóknir sem styðja slíkar aðgerðir beinst að námsárangri fremur en líðan, og fáar hafa byggst á gögnum um heilt þýði sem safnað hefur verið bæði fyrir og eftir innleiðingu símabanns.

Rannsóknin byggir á stóru úrtaki, sem endurspeglar þýðið með góðu móti, og samanburður á þróun mála var kannað fyrir og eftir innleiðingu símabanns. Þetta sterka rannsóknarsnið gerir þessa rannsókn eina þá yfirgripsmestu til þessa á tengslum símabanns í skólum og líðan ungmenna,“ segir Þórhildur.

28. október 2026
Nýjustu fréttirnar