Raunveruleg aukning á vanlíðan unglinga á tímum faraldursins
Þórhildur Halldórsdóttir, lektor við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, flutti Ted fyrirlestur um málefnið í vor
Þórhildur Halldórsdóttir, lektor við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, hélt fyrr á þessu ári Ted fyrirlesturinn Adolescent mental health - Moving forward after the pandemic. Í fyrirlestrinum ræðir Þórhildur um áhrif Covid-19 á andlega heilsu unglinga og þá staðreynd að kvíða- og þunglyndiseinkenni hafa aukist til muna í kjölfar heimsfaraldurs og þá sérstaklega meðal stúlkna á aldrinum 16-18 ára.
Flest deilum við svipaðri reynslu af unglingsárunum þegar mikilvægast er að verja tíma með jafnöldrum sínum. Við getum því ímyndað okkur þau áhrif sem það hefur á andlega heilsu unglinga að umgangast eingöngu fjölskyldu sína í marga mánuði og sækja nám á netinu auk þess að eiga hættu á að veikjast eða smita ástvin og jafnvel valda dauða viðkomandi. Unglingsárin eru sérlega viðkvæmur tími og fyrirboði um það sem koma skal á fullorðinsaldri. Því er forgangsatriði að huga vel að andlegri heilsu unglinga og fjárfesta í þeim innviðum sem nauðsynlegir eru til stuðnings. Covid-19 verður ekki síðasta áskorunin sem við stöndum frammi fyrir og mikilvægt að undirbúa framtíðar kynslóðir undir streitu. Ég er þess fullviss að hægt sé að snúa vörn í sókn og grípa inn í til að koma í veg fyrir frekari vandkvæði. Það er t.a.m. mikilvægt að fræða börn og unglinga um andlega heilsu í gegnum menntakerfið og eins má nota rafræna sálfræðiaðstoð sem hefur reynst vel og getur auðveldað ferlið. Það borgar sig ætíð í að setja fjármuni í að grípa inn í fyrr en seinna bæði fyrir unglinginn, nærumhverfi hans og samfélagins í heild,
sagði Þórhildur m.a í fyrirlestrinum.

Fyrir rúmu ári birti Þórhildur, ásamt öðrum vísindamönnum í HR og í Rannsókn og greiningu, grein í Lancet Psychiatry um líðan ungmenna á tímum covid. Þessi grein vakti mikla athygli á heimsvísu þar sem hægt var með gögnum frá Rannsókn og greiningu að sýna fram á raunverulega aukningu á vanlíðan unglinga á tímum faraldursins. Í kjölfarið fékk Þórhildur töluvupóst með fyrirspurn um að halda TED fyrirlestur en hún hefur breiða þekkingu á bæði áhrifum streitu og áfalla á líðan barna og unglinga og hvaða gagnreyndu meðferðir virka til að draga úr vanlíðan.
Það var mögnuð reynsla að undirbúa og flytja fyrirlesturinn en yfirleitt eru haldnir margir TED fyrirlestrar saman þannig að ég fékk að undirbúa mig með hóp af flottu fólki með mismunandi sérþekkingu. Í gegnum undirbúninginn kynntist ég því frábæru fólki víðs vegar að úr heiminum og lærði mikið af þeim. Lögð var áhersla á að fyrirlesturinn ætti að geta náð til allra og því átti að forðast fræðileg orð og ekki nota gröf eða töflur til að kynna niðurstöður. Það var ákveðin áskorun enda allt öðruvísi nálgun en ég er vön sem vísindamaður. Það var líka magnað að halda fyrirlesturinn í Basel þar sem TED áhorfendur eru einstaklega áhugasamir. Ég hef aldrei áður flutt fyrirlestur fyrir framan fullan sal af svona fróðleiksfúsu og einbeittu fólki. Það fylgdi svolítið stress því að vita að fyrirlesturinn væri tekinn upp og myndi svo fara á netið en á sama tíma var það bara skemmtileg áskorun.
Fyrirlestur Þórhildar má sjá hér
Dagsetning
Deila