RU Racing smíða nýjan formúlubíl í samstarfi við Trefjar
Nemendur HR í RU Racing eru nú önnum kafnir við gerð á nýjum formúlubíl en fyrirtækið Trefjar framleiddi nýlega mót fyrir RU Racing sem hjálpar liðinu verulega í gerð á koltrefjaskel. Þetta er stórt skref fyrir liðið sem er að færast í áttina að meiri koltrefjavinnu en um er að ræða eitt stærsta framlag til RU Racing til þessa.
Framendi bílsins var búinn til í aflmiklum fræsara sem nýlega var tekinn í notkun hjá fyrirtækinu svokallaðri 5 ása CNC-vél. Með henni er gert kleift að taka þrívíddarteikningu og fræsa frumgerð í beinu framhaldi. Með þessari háþróuðu tækni má vinna flókin form með mikilli nákvæmni fyrir lítil og meðalstór verkefni.
RU Racing meðlimir höfðu samband við okkur vegna sérþekkingar okkar á trefjaplasti og mótagerð. Við tókum teikningu nemendanna, fræstum hana í raunstærð og útbjuggum svo mót sem er tilbúið til að framleiða úr. Þá er auðvelt að fjöldaframleiða úr mótinu eftir þörfum. Við erum spennt að sjá lokaafurðina og óskum nemendum HR góðs gengis með bílinn.
Segir Freyja Auðunsdóttir, sem sér um markaðs- og kynningarmál hjá Trefjum en fyrirtækið hefur um 50 ára reynslu af hönnun og framleiðslu hluta úr trefjaplasti, allt frá smærri fiskikörum upp í stóreflis fiskibáta.

RU Racing er klúbbur í HR sem samanstendur af nemendum úr ýmsum deildum við HR. Verkefnið sameinar nýsköpun, verkfræði og teymisvinnu þar sem nemendur vinna að tæknilegri hönnun, framleiðslu, kostnaðargreiningu og viðskiptaáætlun. Nemendur eru að vonum ánægðir með samstarfið sem gerir þeim kleift að endurbæta bílinn til muna.
Það er gríðarlega dýrmætt að geta leitað til fyrirtækis eins og Trefja eftir aðstoð eða ábendingum og sérstaklega þegar við fáum svona styrk. Með samstarfinu má áætla að við höfum sparað okkur um fjögurra mánaða vinnu auk þess sem útkoman verður mun betri en ef við hefðum lagt í þetta allt saman sjálf.
Segir Ragnar Yngvi Marinósson nemandi í vélaverkfræði og meðlimur í stjórn RU Racing.
Dagsetning
Deila