Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
7. apríl 2026

Skema þjálfari hlaut norræn verðlaun

Ylfa Matthildur Seljan Helgadóttir, þjálfari hjá Skema, hlaut á dögunum verðlaunin Future Innovator í flokki 15 ára og yngri frá Girls in Tech Nordic. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi, en þar sem Ylfa átti ekki heimangengt var spilað myndband með þakkarræðu frá henni.

Nú hefur hefur verðlaunagripurinn borist til landsins og stjórnendur hjá Skema heimsóttu Ylfu í Austurbæjarskóla, þar sem hún stundar nám í 10. bekk, og afhentu henni verðlaunin.

Efri mynd til vinstri: Ylfa hélt rafræna þakkarræðu sem var sýnd á verðlaunaafhendingunni í Stokkhólmi.
Efri mynd til hægri: Tilkynnt um sigurvegara Future Innovator.
Neðri mynd til vinstri: F.v.: Sinéad McCarron, verkefna- og hópstjóri hjá Skema, Ottó Tynes, umsjónarkennari í 10. bekk í Austurbæjarskóla, Ylfa Matthildur og Ingunn Gunnsteinsdóttir Kristensen, forstöðukona Opna háskólans sem Skema heyrir undir.
Neðri mynd til hægri: Ylfa komin heim með verðlaunin.

Ylfa kennir skapandi forritunarnámskeið fyrir börn á aldrinum 4–16 ára hjá Skema. Námskeiðin sameina tækni og sköpun með ýmsum leikjum og verkefnum, bæði á tölvur og með öðruvísi leiðum þar sem nýta þarf ímyndunar „Að nota verkfæri eins og Scratch er til dæmis frábært – það er svo skemmtilegt að sjá hugmyndir krakkanna verða að veruleika og sjá áhugann kvikna,“ segir Ylfa.

Starfið hjá Skema hefur fært Ylfu dýrmæta reynslu og eflt hana á margan hátt. „Ég hef lært ótrúlega mikið af því að kenna krökkunum. Hver hópur er ólíkur og það er mjög gefandi að fylgjast með þeim vaxa og læra.“

Þrátt fyrir mikinn áhuga á forritun stefnir Ylfa á að verða annað hvort læknir eða ljósmóðir í framtíðinni. Hún telur þó að reynslan úr Skema muni nýtast henni, sama hvað hún ákveður að taka sér fyrir hendur. „Þó að fáir tengi kannski saman forritun og læknisfræði þá verða stafrænar lausnir alltaf mikilvægari í heilbrigðiskerfinu og þá er mjög gott að búa að þessari reynslu. Þekkingin sem ég hef fengið hjá Skema mun alltaf gagnast mér.“

Tilkynnt var um Future Innovator Award á veglegum viðburði í Stokkhólmi á dögunum.

Hjá Skema ríkir mikil ánægja með árangur Ylfu. Hún þykir fyrirmynd fyrir meðþjálfara sína og nemendur með jákvæðu viðhorfi, sköpunarkrafti og metnaði. Framlag hennar sýnir hversu öflugt getur verið að skapa umhverfi þar sem ungir einstaklingar fá tækifæri til að prófa sig áfram í tækni á eigin forsendum.

7. apríl 2026
Nýjustu fréttirnar