Snýst fyrst og fremst um að læra, þvert á fræðigreinar og færa þekkingu í framkvæmd
Í vikunni sem leið hélt Háskólinn í Reykjavík sumarskólann Hagnýt lífeðlisleg sálfræði og lífendurgjöf (e. biofeedback): Frá þekkingu til hagnýtingar (e. Applied Psychophysiology and Biofeedback: Translating Evidence into Practice). Þetta er fyrsta blandaða hraðnámskeiðið (e. Blended Intensive Programme, BIP) sem haldið hefur verið innan veggja HR og var það skipulagt í samstarfi við Karolinska Institutet og Radboud University undir merkjum háskólanetsins NeurotechEU, sem allir þrír háskólarnir eiga aðild að.
Háskólinn í Reykjavík tók á móti alls 26 þátttakendum frá samstarfsháskólum NeurotechEU. Í gegnum NeurotechEU fá nemendur og starfsfólk tækifæri til að vinna saman þvert á stofnanir og taka þátt í alþjóðlegu náms- og rannsóknasamstarfi, líkt og þessu sumarnámskeiði.

BIP-námskeið eru stutt og hnitmiðuð námskeið sem sameina fjarnám og staðnám í Erasmus+ þátttökulöndum. Sem fyrsta BIP-námskeið Háskólans í Reykjavík markaði námskeiðið mikilvægt skref í að efla alþjóðleg námstækifæri við HR.

„Fjöldi þátttakenda í fyrsta BIP-námskeiðinu okkar fór fram úr okkar björtustu vonum. Allur viðburðurinn gekk afar vel og teymið sem kom að skipulagningu og framkvæmd stóð sig með miklum sóma. Við hlökkum til að taka á móti fleiri nemendum í framtíðinni í gegnum BIP-námskeið,“ segir Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir, forstöðukona alþjóðasviðs HR.

Námskeiðið var hannað fyrir meistara- og doktorsnema í sálfræði, taugavísindum, heilbrigðistækni og líftækniverkfræði. Viðfangsefni þess voru hagnýt lífeðlisleg sálfræði með sérstaka áherslu á sjálfstjórnun hjartsláttarbreytileika (HRV) og notkun lífendurgjafar (e. biofeedback).
„Það var einstaklega ánægjulegt að vinna með hópnum á staðnum. Þar sem námskeiðið var skipulagt í kringum teymisvinnu frá fyrsta degi höfðu þátttakendur þegar kynnst og hafið samstarf áður en þau komu til Reykjavíkur. Það skipti sköpum fyrir stemninguna og samvinnuna alla vikuna. Að sjá nemendurna ljúka vikunni með því að hanna, framkvæma og greina sínar eigin rannsóknir, þar sem þau samþættu þekkingu úr sálfræði, taugavísindum og verkfræði, var fullkomin endurspeglun á markmiðum námsins: að læra þvert á fræðigreinar og færa þekkingu yfir í framkvæmd,“ segir dr. Sigrún Þóra Sveinsdóttir við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík.

Námið hófst í fjarkennslu um miðjan maí með kynningu á námskeiðinu, grunnhugtökum, teymismyndun og gagnvirkri hópkennslu. Því næst tók við staðlota í Háskólanum í Reykjavík þar sem megináhersla var lögð á rannsóknarvinnu tengda hjartsláttarbreytileika, samvinnutilraunir í teymum og gestafyrirlestra sérfræðinga um taugaendurgjöf (neurofeedback) og hagnýta notkun tækninnar. Síðasti áfangi námskeiðsins fer fram í fjarkennslu næstu daga og snýst um gagnagreiningu, skýrslugerð og kynningar. Námskeiðinu lýkur með samþættingarlotu þar sem þátttakendur draga saman helstu lærdóma og festa í sessi þá þekkingu og færni sem þeir hafa tileinkað sér á undanförnum vikum.
Dagsetning
Deila