Spennandi samstarfs tækifæri fyrir HR í Ástralíu
Western Sydney University verður nýr samstarfsskóli HR á næstu mánuðum og þar með þriðji samstarfsskóli HR í Ástralíu. Samstarfið mun byggjast á skiptinámi og auknu akademísku samstarfi. Samstarfið var tryggt í ferð Guðlaugar M Jakobsdóttur, forstöðumanns alþjóðasviðs, til Ástralíu þar sem hún tók þátt í svokölluðu Learning Abroad Fair Circuit hjá samstarfsskólum þar ytra.
Um er að ræða árlegan viðburð þar sem ástralskir háskólar bjóða samstarfsskólum um allan heim að kynna námsmöguleika í skiptinámi. Markmiðið er að hvetja ástralska nemendur til að afla sér alþjóðlegrar reynslu í háskólanámi með því að fara í skiptinám.
Breytingar í alþjóðlegu samstarfi um skiptinám

Ástralía er eitt af vinsælustu löndunum þegar kemur að skiptinámi hjá nemendum HR en þar sem samningar við ástralska háskóla byggjast á jöfnum nemendaskiptum þarf að semja um sveigjanleika og loka plássum til Ástralíu reglulega. Okkur er því mjög í mun að fá til okkar fleiri nemendur frá Ástralíu.
Segir Guðlaug sem kynnti HR við Queensland University of Technology (QUT) og University of Sydney (USYD) þar sem móttökurnar voru afar góðar.

Í QUT í Brisbane hitti ég um 20 áhugasama nemendur og fékk jafnframt HR skiptinema, Benjamín Ragnarsson, til liðs við mig við að kynna HR. Í kjölfarið var boðið upp á leiðsögn um háskólasvæðið þar sem sérstaklega athygli vakti svokölluð HiQ þjónustumiðstöð, miðlæg og sýnileg eining þar sem námsráðgjöf, hagnýtur stuðningur og félagslegt rými eru sameinuð. Þetta er áhugavert módel fyrir þjónustu við nýnema og erlenda nemendur, með sýnilegri walk-in þjónustu. Þá eru kennslu- og rannsóknarrými sveigjanleg og má líkja þeim við leikmyndir í leikhúsi, því rýmin eru með færanlegum búnaði. Góð hópavinnurými eru í nágrenni við rannsóknarrýmin með það að markmiði að auka sýnileika verklegs náms en nemendur geta fylgst með því sem er að gerast í gegnum glerveggi.
Segir Guðlaug sem einnig átti góðan fund með kollegum í QUT til að ræða hvernig auka mætti áhuga nemenda þeirra á Íslandi. Varð niðurstaðan sú að kortleggja betur námskeið sem væru hentug fyrir nemendur og jafnvel búa til sérstakan námspakka. Eins og stendur er HR eingöngu með samning við QUT til tveggja ára og HR nemendur verða að greiða skólagjöld með afslætti á meðan reynt er að jafna hlutfall nemenda í skiptinámi.

Þá tók við ferðalag til Sydney þar sem Guðlaug tók þátt í kynningarviðburði í háskólanum í Sydney.
Það var mjög skemmtilegt og mér reiknast til að ég hafið fengið til mín um 50 manns sem höfðu áhuga á að fræðast meira um HR og Ísland. Mikið var spjallað og í boði var íslenskt nammi og keppni í að bera fram erfið íslensk orð sem vakti mikla lukku. Þá var í boði leiðsögn um fallegan kampusinn í háskólanum í Sydney sem er elsti háskólinn í Ástralíu og var meðal fyrstu háskóla í heiminum til að taka inn nemendur eingöngu á grundvelli námsárangurs en ekki trúar.
Segir Guðlaug að lokum eftir vel heppnaða kynningarferð til Ástralíu.
Dagsetning
Deila