Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
24. apríl 2024

Stafræn þjónusta eykur aðhald og bætir gæði meðferða

Anna Halldóra N. Snorradóttir meistaranemi í stafrænni heilbrigðistækni við HR.

Anna Halldóra N. Snorradóttir stundar meistaranám í stafrænni heilbrigðistækni við tölvunarfræðideild HR. Meistaraverkefni hennar er unnið í samstarfi við geðsvið Landspítala og er ætlað að efla stafræna þjónustu við einstaklinga með geðklofa til að auka aðhald og bæta gæði meðferðar.

Ég lauk BSc í sálfræði og hafði verið í tæplega ár í grunnnámi í tölvunarfræði þegar ég sá auglýsingu um þetta nám. Ég mætti á kynningu og námið heillaði mig strax enda sameinar það mín helstu áhugasvið; heilsu og tækni. Meistaraverkefnið mitt er unnið í samstarfi við geðsvið Landspítala og snýst um að efla stafræna þjónustu við einstaklinga með geðklofa til að auka aðhald og bæta gæði meðferðar. Það var erfitt að velja úr ótal hugmyndum enda er þessi geiri í örum vexti og þar leynast mörg tækifæri.

Anna Halldóra hefur haft tækifæri á að samtvinna nám og starf með starfsnámi sem er hluti af náminu. Hún starfaði á þróunarsviði Landspítalans þar sem hún gerði notendaprófanir á sjúklinga- og starfsmanna öppum sem Landspítali þróar. Þar nýtti hún m.a. aðferðarfræði og þekkingu úr náminu til að vinna í samvinnu við notendur (sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk) til að fá endurgjöf frá þeim um upplifun og notkun.

Ég mæli heilshugar með þessu námi og sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á framförum innan heilbrigðiskerfisins með aðstoð tækninnar, hvort sem það er fyrir heilbrigðisstarfsfólk, sjúklinga eða einstaklinga/hópa almennt. Samnemenendur mínir eru ýmist með heilbrigðis- eða tæknibakgrunn og memendahópurinn er frekar lítill þannig að maður fær góða leiðsögn og hvatningu frá kennurum.

Nýtt meistaranám í stafrænni heilbrigðistækni er mikilvægt skref í að mennta framtíðarsérfræðinga og leiðtoga í stafrænni heilbrigðistækni á Íslandi. Námið miðar að því að búa nemendur undir að bæta heilbrigðiskerfið með nýstárlegri stafrænni og gagnadrifinni nálgun. Tækifærin fyrir tækni í heilbrigðiskerfinu eru fjölmörg og er þetta nám sniðið fyrir þá einstaklinga sem hafa brennandi áhuga á að nýta sér þessi tækifæri.

24. apríl 2024
Nýjustu fréttirnar