29. nóvember 2022
Styrkur til að skrifa handbækur um stjórnun fyrir byggingariðnaðinn
Verkfræðideild HR ásamt Tækniháskólanum í Varsjá, Tækniháskólanum í Darmstadt, GEBZE í Tyrklandi og Studi de Ferrara á Ítalíu fékk nýlega 400.000 evra eða um 60 milljóna íslenskra króna Erasmus+ Evrópustyrk.
CLOEMC VI kallast verkefnið og er liður í að koma upp ítarlegu safni þekkingar fyrir byggingastjóra og mannvirkjahönnuði sérstaklega. Hlutverk HR er áhugavert þar sem þeir Þórður Víkingur Friðgeirsson, Haukur Ingi Jónasson og Helgi Þór Ingason munu meðal annars skrifa um verkefnavæðingu atvinnulífsins, áhættustjórnun og leiðtogafærni. Þessi viðfangsefni falla vel að rannsóknaáherslum þremenningana.
Meira um verkefnið hér!

https://www.cloemcvi.il.pw.edu.pl/?lang=en
Dagsetning
29. nóvember 2022
Deila