Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
27. febrúar 2026

Svefnbyltingunni lýst sem vísindalega framúrskarandi af evrópskri matsnefnd

Segja má að rannsakendur að baki Svefnbyltingunni í HR geti nú loks sofið rótt þar sem að lokaskýrsla rannsóknarinnar hefur verið samþykkt. Þar með lýkur rannsókninni formlega en matsnefnd lýsir henni sem vísindalega framúrskarandi.

Nefndin var samsett af sérfræðingum sem valdir voru af Evrópusambandinu. Í janúar var haldinn fundur með sérfræðingunum þar sem hvert teymi rannsóknarinnar kynnti sinn hluta og sérfræðingarnir fengu tækifæri til að spyrja út í einstaka þætti.

Þær  Erna Sif Arnardóttir, forstöðumaður Svefnsetrins og ábyrgðarmaður Svefnbyltingarinnar, Anna Sigríður Islind, prófessor við tölvunarfræðideild sem leiðir stafrænivæðingu Svefnbyltingarinnar og Kristín Anna Ólafsdóttir, verkefnastjóri Svefnbyltingarinnar eru að vonum ánægðar með árangurinn.

Við erum ótrúlega stoltar og þakklátar fyrir þann mikla meðbyr sem þjóðfélagið veitti okkur. Fjöldi fólks hefur komið til okkar í svefnmælingu, safnað gögnum með appi og snjallúri í marga mánuði og hvatt okkur til dáða þegar róðurinn var þungur. Svo umfangsmikið rannsóknarverkefni vinnst ekki nema öll leggi hönd á plóg og samfélagið studdi okkur svo sannarlega. Við viljum nú halda áfram að gefa til samfélagsins með vísindum sem eru almenningi til góðs og bæta svefn fólks.

Segir Anna Sigríður Islind, prófessor við tölvunarfræðideild. Kristín Anna tekur undir þetta og segir mörg tækifæri hafa skapast bæði innan verkefnsins og utan þess.

Eitt af því sem stendur upp úr er það samfélag vísindafólks sem myndaðist í kringum verkefnið bæði hérlendis og erlendis en ótal ný tækifæri hafa þegar skapast í samvinnu við þær stofnanir og samstarfsaðila sem þátt tóku í Svefnbyltingunni. Þau tækifæri hafa skapast bæði innan verkefnisins sem og utan þess. Samstarfsaðilar eru allir spenntir fyrir áframhaldandi samstarfi og við hlökkum til að takast á við verkefni framtíðarinnar.

Segir Kristín Anna.

Erna Sif segir það vera mikil forréttindi að hafa leitt þetta mikilvæga verkefni síðastliðin ár en um leið hafi fylgt því mikil áskorun að vinna þverfaglega með hundruði einstaklinga frá ólíkum löndum og með ólíkan bakgrunn. Þetta hafi tekist þar sem að rannsóknarhópurinn var staðráðinn í því að bæta svefn og heilsu fólks sem hafi gert samstarfið einstaklega ánægjulegt.

Ég er sérstaklega stolt af teyminu okkar í HR sem hefur bókstaflega verið vakið og sofið yfir þessu verkefni.

Erna sif ARNARDÓTTIR, Forstöðumaður Svefnsetrins
Hlaut stærsta styrk sem rannsókn hefur hlotið á Íslandi

Þær segja lokaskýrsluna hafa verið í stöðugri endurskoðun síðan síðastliðið haust og á fundi nú í janúar hafi þær fengið góðar ábendingar um hvað mætti betur fara en einnig hrós. Teymið hafi verið sérlega stolt og ánægt að heyra rannsóknin væri framúrskarandi, eða af scientific excellence.

Svefnbyltingin fékk styrk frá Evrópusambandinu árið 2021 og var sá styrkur sá stærsti sem komið hefur til Íslands eða 2.5 milljarðar. Svefnbyltingin er einkar umfangsmikið rannsóknarverkefni en út hafa komið yfir 130 ritrýndar vísindagreinar tengdar verkefninu.

Í verkefninu var safnað yfir 70 terabites af gögnum og með því er lagður viðamikill grunnur að framtíðarsamstarfi meðal innlends og erlends samstarfsfólks Svefnbyltingarinnar. Samstarfsaðilarnir voru 39 talsins um gjörvalla Evrópu o g Ástralíu og vísindafólk sem tengist Svefnbyltingunni á einn eða annan hátt telur í hundruðum. Af nógu er því að taka og hægt að skapa enn meiri vísindi sem HR mun njóta góðs af. 

Eitt af því sem stendur upp úr fyrir mig er sá fjöldi nemenda sem hafa unnið frábærar vísindagreinar og lokaverkefni með okkur. Við HR hafa fjöldi nemenda í verkfræðideild, tölvunarfræðideild, sálfræðideild og íþróttafræðideild skólans unnið verkefni á öllum stigum háskólanáms innan Svefnbyltingarinnar og skilað þannig mikilvægri þekkingu til vísindasamfélagsins.

Segir Erna Sif að lokum en hún, Kristín Anna og Anna Sigríður vilja nota tækifærið og þakka öllum fyrir þann stuðning og hvatningu sem þær hafa fengið. Allt frá því að þær hófu að skrifa umsóknina til Evrópusambandsins 2020 fram að því að Svefnbyltingunni var hrundið af stað í mars 2021 og þar til yfir lauk.

Á myndinni eru frá vinstri, Kristín Anna, Anna Sigríður og Erna Sif.

27. febrúar 2026
Nýjustu fréttirnar