Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
28. maí 2026

Tæplega 1300 ungmenni kynntust náms- og starfsmöguleikum á Strákar og stálp í háskóla

Tæplega 1300 strákar og stálp voru samankomin í Háskólanum í Reykjavík þegar Strákar og stálp í háskóla fór fram föstudaginn 22. maí. Viðburðurinn fór fyrst fram á síðasta ári og var vel sóttur en hefur vaxið verulega síðan þá.

Áhugi vakinn á fjölbreyttri menntun

Á viðburðinum var öllum strákum og stálpum úr 9. bekkjum grunnskóla höfuðborgarsvæðisins boðið í heimsókn í Háskólann í Reykjavík þar sem þau fengu fræðslu frá kennurum, nemendum og aðilum úr atvinnulífinu.

Viðburðinum er meðal annars ætlað að bregðast við þeirri þróun sem orðið hefur undanfarin ár að strákar sæki sér síður framhaldsmenntun. Vonir standa til þess að heimsóknin í HR veki áhuga á fjölbreyttri menntun og þeim leiðum sem hún getur opnað í framtíðinni.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við JBT Marel og Festi, en JBT Marel kom að stofnun verkefnisins á síðasta ári með HR. Fyrirkomulagið var með þeim hætti að krakkarnir sóttu fræðslu um háskólamenntun og atvinnulífið, ýmist á skipulögðum vinnustofum eða í formi fyrirlestra.

Sveinn Kjarval, viðburðastjóri hjá JBT Marel.

Það var gaman að sjá svona marga krakka á einum stað og geta lagt sitt af mörkum við að hjálpa þeim að koma auga á hluti sem maður hefði viljað vita fyrr sjálfur. Ég hélt fyrirlestur þar sem ég útskýrði hvernig stór fyrirtæki eins og JBT Marel virka, hvað það þýðir að vera sérfræðingur hjá slíku fyrirtæki og hvernig þú kemst þangað. Ég lagði áherslu á að þú þarft ekki að vita allt því það eru alltaf aðrir sérfræðingar sem eru reiðubúnir til að aðstoða þig. Með þessu vildi ég að krakkarnir skildu að ekkert er ómögulegt brjóti maður verkefnið niður í litla bita. Það er bara að halda áfram og taka eitt skref í einu. Rétt eins og við gerðum hjá JBT Marel sem óx úr því að leysa eitt vandamál og búa til eina vog yfir í það alþjóðlega fyrirtæki sem það er í dag. Skipulagið var til fyrirmyndar og jákvæð orka í húsinu.

Segir Sveinn Kjarval, viðburðastjóri hjá JBT Marel.

Festi-samstæðan tók virkan þátt í verkefninu Strákar og stálp í háskóla og miðluðu fulltrúar frá dótturfélögum samstæðunnar, Elko, Lyfju og Krónunni, reynslu sinni, þekkingu og sýn til þátttakenda.

Við erum afskaplega stolt af því að eiga svona öflugar fyrirmyndir í okkar röðum sem miðluðu af reynslu sinni á lifandi og skemmtilegan hátt. Slík framlög geta haft raunveruleg áhrif á ákvörðun ungs fólks um nám og starfsval til framtíðar. Fyrir Festi er þetta ekki aðeins samfélagslegt verkefni heldur einnig fjárfesting í framtíðinni, í hæfni, nýsköpun og öflugum mannauði sem mun móta íslenskt atvinnulíf til lengri tíma,.

Segir Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri hjá Festi.

Fjölmörg spennandi fyrirtæki tóku jafnframt þátt í viðburðinum og sáu fulltrúar frá þeim ýmist um vinnustofur og fyrirlestra í HR eða móttöku hópa á sínum starfsstöðvum. Fyrirtækin sem tóku þátt í viðburðinum voru: Landhelgisgæsla Íslands, Orkuveitan og dótturfélög, Ístak, Expectus, Hugverkastofan, Rannís, Erasmus +, Juris, Landsbankinn, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Íslandsbanki, Sahara, Mjölnir MMA, Alvotech, Landsvirkjun, Cowi, Efla, KLAK- Icelandic Startups, Þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar, Berjaya, LOGOS og CCP.

Líflegar vinnustofur og fræðsla í HR

Ýmist kennarar, nemendur eða fyrrum nemendur héldu utan um fræðslu og vinnustofur á vegum háskólans. Í fræðslu á vegum sálfræðideildar var fjallað um hvað sálfræði og kvíði er, hvað útskrifaðir sálfræðingar vinna við og einnig fyrirlestur um umhverfissálfræði. Fulltrúar lagadeildar kynntu hvernig lögfræðin væri allt um kring í samfélaginu. Fyrrum nemandi tölvunarfræðideildar miðlaði sinni reynslu í námi og hvaða tækifæri hann fékk í lífinu með því að fara í háskólanám. Einnig fengu nemendur örkennslu í viðmótshönnun.

Í verkfræðideild fór fram verkleg kennsla þar sem rafmagn og ávextir komu við sögu auk þess sem nemendur fengu einnig að prófa að logsjóða í vélarannsóknarstofu. Þátttakendur fengu örnámskeið í frumkvöðlafræði með viðskipta- og hagfræðideild og komu með skemmtilegar hugmyndir að lausnum. Einnig miðluðu nemendur í hagfræði sinni reynslu í námi og því viðburðarríka ferli sem fylgdi því að vinna hugmyndasamkeppnina Vitann í HR.

Kennarar við íþróttafræðideild kynntu þátttakendur fyrir rannsóknarstofu sinni og útskýrðu hvaða mælingar þeir fást við í námi og vinnu auk þess að segja frá þeim tækifærum sem liggja í íþróttafræðinámi. Þá heimsóttu nemendur nýsköpunarsetur HR, Seres, þar sem fulltrúar Sprota, nýsköpunar- og frumkvöðlanefndar HR, kynntu starfsemina.

Dr. Hallur Þór Sigurðarson, dósent við viðskipta- og hagfræðideild.

Mér fannst þetta takast vel. Þátttakendur voru fullir af orku og voru áhugasamir um að móta nýjar hugmyndir fyrir vöru og þjónustu.

Segir Dr. Hallur Þór Sigurðarson, dósent við viðskipta- og hagfræðideild.

Við í HR þökkum öllum þátttakendum, fyrirtækjum og samstarfsaðilum kærlega fyrir gott samstarf og hlökkum til að ári.

28. maí 2026
Nýjustu fréttirnar