Því fólki farnast best í lífinu sem sýnir mennsku
Á vel heppnuðum Framadögum sem fram fóru þann 22. janúar síðastliðinn bauð frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, þátt í sófaspjalli í Háskólanum í Reykjavík ásamt Gunnari Þór Péturssyni, deildarforseta lagadeildar, Dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, opnaði viðburðinn.
Halla og Gunnar Þór ræddu um eðli leiðtogahlutverksins, hvers væri helst krafist af leiðtogum í heiminum í dag og ræddu um hvað Halla hefði lært um leiðtogahlutverkið á sínum starfsferli. Í lokin gafst gestum tækifæri til að spyrja þau Gunnar út í efnið en einnig um hvernig best væri að taka fyrstu skrefin á vinnumarkaði. Sköpuðust einlægar og áhugaverðar samræður á milli forseta og nemenda.

Halla sagði nemendum að mikilvægast væri að ákveða hver þau ætluðu sér að vera og hvar og hvernig þau vildu nýta sína starfskrafta í þágu samfélagsins. Þá ræddi hún um S-in fimm, þ.e. þá eiginleika sem væru að hennar mati mikilvægastir fyrir farsælan starfsferil. S-in fimm, útskýrði hún, eru seigla, sveigjanleiki, samstarfshæfni, samskiptahæfni og sköpunarkraftur. Og Halla bætti við:
Alvöru leiðtogi horfir í spegilinn og spyr; Hvernig get ég lagt mitt af mörkum? Það skiptir miklu máli að vita hver maður er og fyrir hvað maður ætlar að standa, enda er karakter mjög mikilvægur í starfsumhverfinu í dag. Ég tel að við séum öll fædd leiðtogar og verkefni lífsins sé að laða fram og þjálfa þá hæfileika sem leiðtogi þarf að búa yfir. Við lærum af allri lífsreynslu og langstærstu lexíurnar verða af þeim mistökum sem við gerum. Einmitt þess vegna eigum við ekki óttast að taka skref út fyrir þægindarammann.
Halla bætti við að á þeim viðsjárverðu tímum sem við lifum sé mikilvægt að láta ekki óttann ráða för. Það skipti höfuðmáli að geta komið auga á það góða og lyfta upp því sem vel er gert. Það sé leiðin til að leysa úr læðingi það mikla og jákvæða afl sem býr í samfélaginu. Aðspurð sagði Halla að hún væri hvað stoltust í embætti af verkefninu Riddarar kærleikans. Þar hefði sýnt sig hve mikilvægt sé að fá stóran hóp af fólki til að vinna saman að sameiginlegu markmiði.

Þegar Halla var spurð að því hvernig væri að vera kona í leiðtogastarfi svaraði hún því til að það sem hefði reynst sér einna best væri að vera hún sjálf. „Ég trúi fyrst og fremst . Ekkert er meira afvopnandi en einlægni. Því fólki farnast best í lífinu sem er tilbúið að vinna með öðrum og sýna mennsku.“
Ég trúi fyrst og fremst á einlægni og á að maður leyfi sér að vera maður sjálfur. Ekkert er meira afvopnandi en einlægni. Því fólki farnast best í lífinu sem er tilbúið að vinna með öðrum og sýna mennsku.
frú halla tómasdóttir forseti íslands
Dagsetning
Deila