Ungmenni glíma enn við aukna vanlíðan heldur en fyrir heimsfaraldur COVID-19
Vísindamenn við Háskólann í Reykjavík ásamt alþjóðlegum rannsóknarhópi birtu nýverið niðurstöður rannsóknar á langvarandi áhrifum COVID-19 heimsfaraldursins á geðheilsu íslenskra ungmenna í Lancet Regional Health – Europe.
Rannsóknin er með þeim fyrstu á heimsvísu til að skoða langtímaáhrif faraldursins þar sem flest ungmenni á landsvísu taka þátt. Hún byggir á upplýsingum frá meira en 62.000 svörum 13-15 ára ungmennum á Íslandi og kannar líðan þeirra fyrir faraldurinn, á meðan á faraldrinum stóð og eftir faraldurinn. Var síðasta mælingin gerð í nóvember 2023.
Þórhildur Halldórsdóttir, dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, segir niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að ungmenni glími enn við aukna vanlíðan heldur en fyrir faraldurinn.
„Þunglyndiseinkenni jukust á meðan á faraldrinum stóð en sýna merki um minnkun eftir faraldurinn. Kvíði og reiði hins vegar jukust og þessi aukning hefur haldist,“ segir Þórhildur.
Þá var einnig notast við heildrænt líkan til þess að bera kennsl á áhættuþætti og verndandi þætti í umhverfi ungmenna, t.d. á heimilinu og í skólanum. Í ljós kom að stuðningur frá foreldrum, áföll og skjátími höfðu áhrif á líðan ungmenna en rannsóknir sýna að slíkir þættir tóku breytingum í faraldrinum.
Aðrar helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru eftirfarandi:
- Geðheilsa ungmenna á Íslandi var verst árið 2022 – sem bendir til erfiðleika við að koma samfélaginu aftur í eðlilegt horf eftir tímabil takmarkanna; þetta ár var fjöldi smita á Íslandi hæstur.
- Lítill stuðningur frá foreldrum, mikil notkun samfélagsmiðla og slæm einkunn spáðu fyrir um slæma geðheilsu spáðu helst um vanlíðan – ólíkt því sem fram hefur komið í öðrum rannsóknum, sýndi þessi rannsókn ekki mikla aukningu á skjátíma vegna faraldursins (fyrir utan tölvuleikjaspil með vinum).
- Aukning á slysum, kynferðisofbeldi af hendi jafnaldra (það síðastnefnda var einungis tilkynnt af stúlkum) og rifrildum við foreldra bendir mögulega til aukningar áhættuhegðun og samskiptaerfiðleika meðal ungmenna.
Dagsetning
Deila