Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
8. júní 2026

Útskrift úr Háskólagrunni í Sólinni

Útskrift úr Háskólagrunni fór fram í HR 5. júní sl. Útskriftarnemar tóku við prófskírteinum sínum í hátíðlegri athöfn í Sólinni en að þessu sinni voru þeir 31 talsins.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, flutti ávarp.

Ávörp fluttu Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, Sævar Helgi Lárusson verkfræðingur, fyrir hönd eldri útskriftarnema, Ívar Sveinsson, fyrir hönd útskriftarnema og Anna Sigríður Bragadóttir, forstöðumaður Háskólagrunns. Rakel Gunnarsdóttir, verkefnastjóri á samskiptasviði HR, stýrði athöfn og Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson fluttu tónlistaratriði.

Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Lísa Vilhjálmsdóttir hlaut viðurkenningu frá Samtökum iðnaðarins fyrir besta árangurinn á lokaprófi frá Háskólagrunni. Þá hlaut hún einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur í raungreinum frá verkfræðideild HR, góðan árangur í stærðfræði frá tæknifræðideild HR og góðan árangur í íslensku og ensku. Lúkas Breki Larsen Valgeirsson hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í forritun frá tölvunarfræðideild HR og Sóley María Ágústsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í viðskiptagreinum frá viðskiptafræðideild HR fyrir góðan árangur í viðskiptastærðfræði og tölfræði.

Háskólagrunnur HR er undirbúningur fyrir háskólanám og samanstendur nemendahópur deildarinnar af fólki sem hefur verið á vinnumarkaði, fólki með iðnmenntun og fólki sem ekki hefur lokið framhaldsskóla.

Háskólagrunnur HR hefur lagt sitt af mörkum í áratugi við að efla menntun og möguleika til framhaldsnáms. Þá býður Háskólagrunnur, í samstarfi við alþjóðasvið HR, erlendum nemendum skólans upp á námskeið í íslensku og stuðlar þannig að inngildingu þeirra í íslenskt samfélag.

Útskriftarhópurinn fagnar
8. júní 2026
Nýjustu fréttirnar