Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
25. september 2026

Vala lætur ljósleiðara spá fyrir um eldvirkni

Dr. Vala Hjörleifsdóttir, jarðskjálftafræðingur og dósent við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, hefur unnið að nýrri tækni sem nýtir ljósleiðara til þess að spá fyrir um eldvirkni. Í dag, föstudaginn 25. september, heldur hún erindi um þessa tækni á Vísinda og nýsköpunarþingi sem fer fram í Grósku frá klukkan 9-12. Þá tekur hún einnig þátt í pallborði á þinginu. Á laugardag sýnir Vala ásamt samstarfsfólki sínu hvernig tæknin virkar á Vísindavöku Rannís 2026 í Laugardalshöll.

„Á kynningunni í dag  segi ég aðeins frá þessari tækni, hvar er hægt að nota hana og hvað við erum að nota hana í. Kynningin verður opin almenningi og þar verða meðal annars um 100 krakkar úr framhaldsskólum.

Svo er pallborð þar sem verður almenn umræða um vísindi. Með mér á þessum viðburði er aðallega fólk úr atvinnulífinu,“ segir Vala, en erindi hennar ber heitið Ljósleiðarar, eldfjöll, umhverfi og orka.

Vísinda- og nýsköpunarþingið í dag er opið á meðan húsrúm leyfir - salurinn í Grósku rúmar 250 manns - og fer skráning fram hér.

L

Límum ljósleiðarann út um allar trissur

Á Vísindavöku á laugardag, sem er öllum opin og engin þörf á að skrá sig, geta áhugasamir fengið að sjá með eigin augum hvernig hægt er að nýta ljósleiðara til þess að mæla og spá fyrir um ýmislegt, þar á meðal eldvirkni.

„Á laugardaginn verðum við með bás þar sem við sýnum hvernig þessi ljósleiðaratækni, sem við erum að nota í alls konar, virkar. Þar verðum við með mælitækið sjálft sem verður tengt við ljósleiðara.

Við ætlum að líma ljósleiðarann út um allar trissur og getum látið fólk gera merki og fleira. Þannig sýnum við í verki hvernig tæknin virkar. Einnig sýnum við hvernig tækið bregst við þegar ljósleiðarinn hitnar eða er hristur,“ útskýrir Vala.

Varar við yfirvofandi eldgosi

Eins og gefur að skilja er eldvirkni engin í Laugardalshöll. Þrátt fyrir það er mælitækið sem stuðst verður við á Vísindavökunni það sama og er notað til að spá fyrir um eldvirkni.

„Þetta er í rauninni nákvæmlega sama tæknin sem við notum til að sjá hvenær og hvernig kvika rís í jarðskorpunni í eldgosum.

Það sem gerist þar er að kvikan þenur jarðskorpuna og ljósleiðarinn er grafinn ofan í jörðina þannig að það teygist á honum eða hann þjappast saman eftir því hvernig jörðin bregst við kvikuinnstreyminu. 

Þessi ljósleiðaravaki sem við notum, mælitækið, hann sendir merki á Veðurstofuna og varar við yfirvofandi eldgosi,“ segir Vala að lokum.

25. september 2026
Nýjustu fréttirnar