Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
10. mars 2026

Viðurkenning sem stuðlar að jákvæðri umfjöllun og þróun í kennslu skólaíþrótta

Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík býður íþróttakennurum í grunnskóla til þátttöku í framtaki sem miðar að því að varpa ljósi á áhrifaríkar og hvetjandi aðferðir við kennslu í skólaíþróttum og sundi. Þetta er í annað sinn sem íþróttafræðideild HR veitir viðurkenninguna.

Í ár er sérstök áhersla lögð á námsmat yngsta stigs, sunds á öllum stigum og innleiðingu nýju hæfniviðmiðanna, þó áfram sé opið er fyrir tilnefningar og umsóknir um námsmat á öðrum þáttum.  

Þátttökuskilyrði 

Þekkir þú einhvern kennara sem á skilið að fá tilnefningu? Tilnefningar mega berast á kennsluvidurkenning@ru.is og innihalda upplýsingar um þann aðila sem tilnefnir og stutta útskýringu um kennarann eða það teymi kennara sem tilnefnt er og tengiliðaupplýsingar. 

Ef þú ert kennari, þá hvetjum við þig til að sækja um. Umsóknir skulu styðjast við þetta  SNIÐMÁT og skila ásamt öðrum nauðsynlegum upplýsingum sem viðhengi í tölvupósti: kennsluvidurkenning@ru.is 

  • Allir kennarar sem kenna skólaíþróttir í grunnskólum skólaárið 2025-2026 geta sótt um.  
  • Vinsamlega gætið að því að hlaða aðeins upp nauðsynlegum viðhengjum 
  • Vinsamlega gætið líka að því að hlaða EKKI upp persónugreinanlegum upplýsingum um nemendur 
  • Ath: Það þarf að vista skjalið í tölvuna, fylla það út og senda í tölvupósti.

Öllum tilnefningum og umsóknum sem berast verður svarað í gegnum kennsluvidurkenning@ru.is. 

Lykildagsetningar og upplýsingar varðandi umsóknarferli

  • Umsóknatímabil: 10. mars - 30. apríl 2026 

Viðurkenningarathöfn fer fram í Háskólanum í Reykjavík þann 28. maí kl. 13:00. Frá kl. 13:00-14:00 verða nemendaverkefni hjá nemendum í íþróttafræði við HR sem til sýnis og hefst svo formleg viðurkenningarathöfn í stofu V102 kl. 14:00.

Dagskrá:
kl. 13:00 - Nemendur í námsefnisgerð kynna afurðir sýnar
kl. 14:00 - Viðurkenningar fyrir notkun námsmats í skólaíþróttum

Ávinningur  

Framtakinu er ætlað að draga fram góða og vandaða starfshætti í faginu og miðla þeim áfram innan stéttarinnar. Þannig verða viðurkenndar aðferðir við námsmat mikilvægt innlegg í því að skapa jákvæða og faglega sterka umræðu um lykilþátt í faginu okkar. 

Um námsmat í skólaíþróttum  

Námsmat er einn af hornsteinum vandaðrar kennslu og útfærsla þess tengir saman markmið fagsins við þær aðferðir sem notaðar eru til kennslunnar. Mikilvægt er að umsækjendur sýni fram á tengingu hæfniviðmiða, lykilhæfni og matsviðmiða aðalnámskrár grunnskóla við námsmatið sjálft. 

Matsferli 

Sérstök matsnefnd hefur verið sett saman til að fara yfir þær umsóknir sem berast og veita umsögn. Framkvæmt verður mat og almennt endurgjöf veitt á þær umsóknir sem berast til að styðja við faglega þróun kennara.  

Við hvetjum alla íþróttakennara til að taka þátt og deila aðferðum sínum við námsmat í skólaíþróttum. Saman getum við stuðlað að jákvæðri umfjöllun og þróun í kennslu skólaíþrótta. 

Taktu þátt í ár og vertu með í framtakinu! 

Ef þú ert íþróttakennari í grunnskóla og hefur þróað aðferð sem eflir nám og hvetur nemendur til þátttöku í skólaíþróttum, hvetjum við þig til að senda inn umsókn. Umsóknin getur verið í þínu nafni, og eða í nafni teymis sem starfar saman við skólann við skólaíþróttir.

Hvað felst í umsókninni?

Umsókn þín ætti að innihalda:

  • Lýsingu á námsmatsaðferðinni og hvernig hún er notuð í kennslu.
  • Gögn eða dæmi sem sýna áhrif aðferðarinnar á nemendur.
  • Lýsingu á tengingu aðferða við matsviðmið aðalnámskrár, hæfniviðmið eða lykilhæfni.

Hvernig fer matið fram?

  • Matsnefnd metur allar umsóknir út frá skýrleika, útfærslu og áhrifum námsmatsins.
  • Allir umsækjendur fá endurgjöf, og þau sem hljóta viðurkenningu fá skjal því til staðfestingar.
10. mars 2026
Nýjustu fréttirnar