Vindmyllur í brennidepli á hátíðarfyrirlestri iðn- og tæknifræðideildar
Dr. Unnur Stella Guðmundsdóttir, forstöðumaður verkfræðisviðs hjá Siemens Gamesa Offshore, hélt hátíðarfyrirlestur á vegum iðn- og tæknifræðideildar Háskólans í Reykjavík í vikunni, í tilefni af 25 ára afmæli skólans.
Fyrirlesturinn vakti mikla athygli og var vel sóttur auk þess sem töluverður fjöldi fólks fylgdist með í streymi. Í fyrirlestrinum fjallaði Unnur Stella um vindorku á hafi úti í víðum skilningi. Hún útskýrði meðal annars hvernig vindorkuver á hafi úti er byggt upp og hvernig orkan berst inn í flutningskerfin. Auk þess veitti hún innsýn í það sem er í gangi í heiminum í dag þegar kemur að vindmyllum á hafi úti og fljótandi vindmyllum.
Unnur Stella er fædd í Hafnarfirði og lauk BSc gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands árið 2003. Árið 2005 flutti Unnur Stella til Danmerkur og hefur búið þar síðan.

Unnur Stella er með doktorsgráðu í háspennuverkfræði frá Aalborg University, þar sem hún gaf út bókina "Modelling of long High Voltage AC Cables in Transmission Systems".
Að námi loknu vann hún hjá Energinet, sem „senior“ strengjasérfræðingur og síðar sem hópstjóri strengjasérfræðinga. Árið 2014 hóf Unnur Stella störf hjá Ørsted, stærsta orkufyrirtæki heims í endurnýjanlegri orku. Þar tók hún fyrst við sviði háspennustrengja og síðar QHSE (gæða- og öryggisstjórnun) fyrir alla „offshore“ vindmyllugarða Ørsteds.
Í dag er Unnur Stella yfirmaður verkfræðisviðs hjá Siemens Gamesa Offshore, stærsta framleiðanda heims á sviði „offshore“ vindmylla. Í gegnum árin hefur Unnur Stella gefið út ýmsar bækur og greinar um háspennustrengi, hjá Cigré, IEEE, IPST, JiCable og í gegnum útgáfufyrirtækið Springer.
///
This week Dr. Unnur Stella Guðmundsdóttir, head of offshore project engineering at Siemens Gamesa Offshore, held a lecture at Reykjavík University. The lecture was organized by the Department of Applied Engineering and was part of the University‘s 25th anniversary lecture series.

The lecture gained a lot of attention, was well attended and a lot of people watched it on live stream. In her lecture Unnur Stella talked about offshore wind power from various perspectives, explained how offshore wind farms are built up and how energy is transferred to the power transmission system. Unnur Stella also gave insight into what’s going on in the world today when it comes to offshore wind farms.
Dagsetning
Deila