Viðskiptafræði- með tölvunarfræði
Hvað læri ég?
Námsbrautin samtvinnar þekkingu í viðskiptafræði og tölvunarfræði með það að markmiði að nemendur öðlist grunn í stjórnun og rekstri fyrirtækja auk tæknilegrar kunnáttu. Nemandi útskrifast frá viðskipta-og hagfræðideild.
Að námi loknu á nemandi að hafa þekkingu á:
- Undirstöðugreinum eins og stærðfræði, tölfræði, rekstrar- og fjárhagsbókhaldi, reikningshaldi, hagfræði, fjármálum, upplýsingatækni, stjórnun og markaðsfræði.
- Aðferðum sem er beitt við greiningu og úrvinnslu gagna.
- Grundvallaratriðum á sviði hugbúnaðargerðar: greiningu hugbúnaðar, hönnun, forritun og prófanir.
- Hvernig þróa eigi mismunandi hugbúnaðarkerfi innan faggreina.
- Grundvallaratriðum við hagnýtingu innan upplýsingatækni, þar með talið upplýsingastjórnun og greind kerfi.
Hvernig læri ég?
Nemendur taka þátt í hópavinnu, frumkvöðlastarfi og samstarfi milli deilda. Þannig fá þeir góðan undirbúning fyrir atvinnulífið og hafa hlotið þjálfun sem gerir þá í stakk búna til að stofna eigið fyrirtæki.
Hluti náms á ensku
Þriðja námsárið er kennt á ensku en það undirbýr nemendur fyrir framhaldsnám og störf í alþjóðlegu umhverfi.
Gestafyrirlesarar
Á hverju ári koma 60–80 gestafyrirlesarar úr atvinnulífinu að kennslu.
Starfsnám
Nemendur í grunnnámi í viðskiptafræði geta sótt um að ljúka einingum í starfsnámi. Starfsnámið veitir nemendum einstakt tækifæri til að undirbúa sig fyrir þær áskoranir sem viðskiptafræðingar mæta í atvinnulífinu.
Að námi loknu
Út á vinnumarkaðinn
Viðskiptafræðingar hafa möguleika á fjölbreyttum störfum innan einkageirans og hins opinbera og námið hentar vel þeim sem hafa t.d. áhuga á að starfa hjá fyrirtækjum í upplýsingatækni.
Viðskiptafræðingar starfa við stofnun og rekstur fyrirtækja, mannauðsmál, fjármál, stefnumótun, sölu- og markaðsmál, framleiðslu og reikningshald.
Áframhaldandi nám
Námið nýtist vel fyrir meistaranám í viðskiptafræði og upplýsingastjórnun.
Námið sem ég valdi mér; viðskiptafræði með tölvunarfræði sem aukagrein er gríðarlega krefjandi, skemmtilegt og áhugavert. Verkefnin sem eru lögð fyrir eru í samræmi við það sem er gert á vinnumarkaði og þar af leiðandi er námið mjög góður undirbúningur fyrir atvinnulífið. Umhverfið, skólinn og starfsfólkið gera það að verkum að manni líður alltaf vel þrátt fyrir erfiða námsdaga.
Tölvunarfræði er blanda af stærðfræði, list og tungumálum. Þá er einhver lína af kóða sem ég skrifa sem breytir litnum á skjánum mínum, bara strax! Það er svo mikið í boði, það er svo mikið í gangi - þú getur meira að segja bara skapað þína eigin grein.
Skipulag náms
Nemendur ljúka 120 einingum í viðskiptafræði og 60 einingum í tölvunarfræði.
- 108 ECTS í kjarna (18 námskeið)
- 60 ECTS í aukagreininni (10 námskeið)
- 12 ECTS í lokaverkefni
Að jafnaði eru tekin fimm námskeið (30 ECTS) á hverri önn og telst það fullt nám. Fjögur námskeið eru kennd í 12 vikur og síðan er prófað úr þeim. Að prófum loknum taka við þriggja vikna námskeið þar sem námsefnið er sett í hagnýtt samhengi með verkefnavinnu, hópavinnu og/eða samstarfi við fyrirtæki.
Velgengni í námi og starfi
Hluti af grunnnámi í viðskipta- og hagfræði eru sex 1 ECTS eininga námskeið sem bera yfirskriftina Velgengni í námi og starfi (Personal development). Námskeiðin bera heitin; Lífið í háskóla, Velsæld, Leiðtogahæfni og skilvirk teymi, Gagnrýn hugsun, Framkoma og mælskulist og Starfsframi. Markmið námskeiðannna er að byggja nemendur upp enn frekar fyrir atvinnulíf og frekara nám. Á útskriftarönn taka nemendur því einu námskeiði færra (24 ECTS) og hafa meira svigrúm til að einbeita sér að lokaverkefni.
Að hefja nám á vorönn
Ekki er opið fyrir umsóknir um áramót. Undantekningar eru mögulegar ef nemandi í HR óskar eftir að skipta um námsbraut og uppfyllir inntökuskilyrði í viðskiptafræði. Einnig ef nám í viðskiptafræði hefur verið stundað í öðrum háskóla. Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri.
Þriggja vikna námskeið

HR hefur skrifað undir viljayfirlýsingu PRME varðandi menntun ábyrgra stjórnenda sem er sett fram af Sameinuðu þjóðunum.
Aðstaða
Þjónusta og góður aðbúnaður
Í háskólabyggingu HR er aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.
Kennslustofur og lesherbergi
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn.
Þjónusta
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.
Verslanir og kaffihús
Í HR er Háskólabúðin sem selur nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.
Af hverju viðskiptafræði í HR?
- Góð tengsl við atvinnulífið
- Raunhæf verkefni
- Öflugt starfsnám
- Alþjóðlega vottaðar námsbrautir