Gervigreindarstefna
Tilgangur
Tilgangur gervigreindarstefnu er að Háskólinn í Reykjavík (HR) nálgist framfarir í gervigreind af sömu heilindum og annað í sinni starfsemi, nýti tækifærin af metnaði, hafi mennskuna í fyrirrúmi og byggi notkun á ábyrgð.
Gervigreind breytir nálgun við sköpun og miðlun þekkingar og þar með hvernig háskólinn undirbýr samfélagið fyrir framtíðina. HR mætir þessum breytingum með framsýni og gagnrýnni hugsun þar sem tæknin styður fólk en leysir ekki mannlega dómgreind af hólmi.
Umfang
Gervigreindarstefnan gildir í allri starfsemi Háskólans í Reykjavík: í námi og kennslu, rannsóknum og nýsköpun og við stjórnun og rekstur. Hún nær til nemenda og alls starfsfólks í öllum deildum og starfseiningum. Með gervigreind er hér einkum átt við spunagreind og kerfi sem vinna verkefni sjálfstætt.
Stefnan byggir á Stefnu HR til ársins 2030 og útfærir áherslu skólans um að nýta framfarir í tækni og gervigreind á ábyrgan hátt.
Stefnur, reglur og viðmið skólans halda gildi sínu. Stefnan kemur ekki í stað þeirra heldur setur sameiginlegan ramma um nýtingu gervigreindar, og getur kallað á endurskoðun einstakra skjala. Notkun gervigreindar innan skólans lýtur jafnframt gildandi lögum og regluverki, þar á meðal um persónuvernd.
Grundvöllur
Grundvöllur stefnunnar er þríþættur: verðmætasköpun, mennska og ábyrg notkun. Þættirnir þrír haldast í hendur og veita hver öðrum aðhald.
Verðmætasköpun
HR nýtir gervigreind til að skapa verðmæti fyrir háskólann, atvinnulífið og samfélagið. Gervigreind styður við þekkingarsköpun og rannsóknastarf, gæði náms og kennslu og þverfaglegt samstarf innan og utan skólans. HR er í fararbroddi í ábyrgri nýtingu gervigreindar og miðlar þekkingu sinni og reynslu á þessu sviði sem öðrum, jafnt innan skólans sem í opinberri umræðu.
Mennska
Fólk er í fyrirrúmi þegar gervigreind er notuð í starfi háskólans. Gagnrýnin hugsun, sköpunarkraftur og fagleg dómgreind eru forsenda góðrar notkunar. Ábyrgð á eigin framlagi er ávallt mannleg og í höndum fólks og óháð þeirri tækni sem er notuð. Gervigreind réttlætir hvorki niðurstöðu né léttir af ábyrgð notanda. Notandi sannreynir útkomu gervigreindar þar sem áreiðanleg niðurstaða skiptir máli. Gervigreind getur aukið aðgengi að námi og starfi, meðal annars við lestur, þýðingar og skipulag verkefna, og HR nýtir þau tækifæri.
Ábyrg notkun
Notkun gervigreindar er gagnsæ og rekjanleg og fylgir gildandi lögum og regluverki. Gerð er grein fyrir notkun þar sem hún hefur áhrif á niðurstöður. Persónuupplýsingar og trúnaðargögn njóta verndar og gögn fara ekki í kerfi sem skólinn hefur ekki samþykkt. Notkun gervigreindar á að stuðla að jafnrétti og sanngirni, ekki öfugt. HR fylgist með og bregst við hlutdrægni í kerfum sem skólinn notar fyrir eigin starfsemi. Í þágu sjálfbærni er orkufrekri notkun gervigreindar stillt í hóf.
Meginmarkmið og áherslur
Meginmarkmiðin þrjú ná yfir alla starfsemi háskólans. Áherslur útfæra hvert markmið nánar og leiða daglega notkun gervigreindar.
Nám og kennsla
HR nýtir gervigreind til að efla gæði náms og kennslu. HR býr nemendur og kennara undir að nýta hana af öryggi og gagnrýnni hugsun og stendur vörð um heilindi í námsmati.
Gervigreindarlæsi. Nemendur og kennarar þekkja möguleika gervigreindar og takmörk hennar, kunna að meta útkomu hennar og bera ábyrgð á eigin notkun. Allir nemendur fá fræðsluefni og kennslu í gervigreindarlæsi.
Skýr umgjörð náms og námsmats. Nemendum er ljóst hvenær og hvernig nota má gervigreind í hverju námskeiði og hvernig gera skal grein fyrir notkuninni. Námsmat er þróað þannig að það reyni á raunverulega þekkingu og hæfni nemenda.
Stuðningur við kennara og þróun kennsluhátta. Kennarar fá þjálfun, ráðgjöf og aðgang að öruggu gervigreindarumhverfi. Reynslu er miðlað milli deilda svo þekking byggist upp innan skólans. Starfsfólk þróar, prófar og metur kennslu- og námsmatsaðferðir sem nýta gervigreind, og niðurstöður eru nýttar við ákvarðanir um þróun kennsluhátta og nám.
Rannsóknir og nýsköpun
HR styður rannsakendur við að nýta gervigreind og að gæta þess að vísindaleg heilindi haldist óskert.
Aðgengi að innviðum. HR leitast við að byggja upp aðgang rannsakenda á öllum fræðasviðum að reikniafli, gögnum og sérþekkingu sem nýting gervigreindar í rannsóknum krefst, þar á meðal málgögnum og innviðum fyrir íslenska máltækni.
Heilindi í rannsóknum. Gerð er grein fyrir notkun gervigreindar í rannsóknarvinnu og birtingum, enda getur gervigreind ekki verið höfundur. Skólinn setur skýr viðmið um upplýsingaskyldu, tilvísanir og hugverkaréttindi í gervigreindarsamhengi.
Nýsköpun og hagnýting. Niðurstöður gervigreindarrannsókna eru hagnýttar í þágu atvinnulífs og samfélags. HR styður við sprota og samstarf sem byggja á þeirri þekkingu sem verður til innan skólans.
Stjórnun og rekstur
HR notar gervigreind til að bæta þjónustu og einfalda vinnulag í rekstri háskólans. HR innleiðir hana skipulega, í öruggu umhverfi og með mannlega yfirsýn í þeim ferlum sem snerta fólk.
Örugg innleiðing og traust gögn. Gervigreind er nýtt í umhverfi þar sem gögn skólans eru varin. Áreiðanleg og samræmd gögn og skjöl eru forsenda þess að gervigreind nýtist í rekstri. Kerfi eru valin með skipulegum hætti og áhætta metin áður en þau eru tekin í notkun. Kröfur um öryggi og persónuvernd gilda einnig um þá sem útvega skólanum gervigreindarlausnir.
Mannleg yfirsýn í ákvörðunum. Í ferlum sem snerta nemendur, starfsfólk og þátttakendur í rannsóknum er ákvörðun ávallt á ábyrgð fólks. Gervigreind styður undirbúning og greiningu en tekur ekki ákvarðanir um hagsmuni einstaklinga, hvorki sem verkfæri né sem kerfi sem vinna verk sjálfstætt.
Hæfni og vinnulag starfsfólks. Starfsfólk fær þjálfun og stuðning til að nýta gervigreind í daglegum störfum. Gervigreind breytir verkefnum og vinnulagi og þær breytingar eru unnar í samráði við starfsfólk.
Framfylgd
Framkvæmdaráð samþykkir gervigreindarstefnu og rektor ber ábyrgð á að henni sé fylgt. Aðstoðarrektorar og framkvæmdarstjóri rekstrar leiða framfylgd stefnunnar í umboði rektors, halda utan um aðgerðir og forgangsraða þeim. Deildarforsetar og aðrir stjórnendur bera ábyrgð á aðgerðum og framfylgd stefnunnar innan sinnar starfsemi.
Stefnan er endurskoðuð árlega eða oftar, enda breytast forsendur hratt á þessu sviði. Endurskoðun tekur mið af þróun tækninnar, reynslu innan skólans og breytingum á regluverki.
Nemendur, starfsfólk og þátttakendur í rannsóknum geta komið á framfæri athugasemdum eða andmælum vegna notkunar gervigreindar í málum sem varða þau, eftir þeim leiðum sem gilda innan skólans.
Allt starfsfólk og nemendur taka þátt í að raungera stefnuna í daglegu starfi og námi.
Samþykkt af framkvæmdaráði HR 29. september 2026