Raforkuverkfræði MSc
Flutningur og framleiðsla raforku er afar mikilvægt viðfangsefni fyrir íslenskt samfélag. Daglegt líf okkar og rekstur fyrirtækja veltur á því að flutningur raforku sé öruggur og framleiðsla rafmagns stöðug. Raforkukerfi taka örum breytingum og það er nauðsynlegt að rafmagnsverkfræðingar framtíðarinnar séu vel í stakk búnir til að takast á við þær.
Um námið
Framleiðsla og flutningur orku
Raforkuverkfræði fjallar um uppbyggingu og rekstur raforkukerfa og framleiðslu raforku. Einnig fæst greinin við flutning orkunnar og hvernig hægt er að uppfylla kröfur um samfellda en breytilega raforkunotkun árið um kring. Raforkuverkfræði fjallar líka um það hvernig einstakir kerfishlutar eru byggðir upp, hvaða kröfur þarf að gera til þeirra og ekki síst hvernig þeir vinna saman sem ein heild á sem bestan og hagkvæmastan hátt.
Alþjóðlegt nám á Íslandi
Fjöldi erlendra nemenda er í framhaldsnámi í raforkuverkfræði og raforkuvísindum við Háskólann í Reykjavík sem kennt er í samstarfi við Iceland School of Energy . Nemendur á lokaári BSc og í meistaranámi fá tækifæri til að kynnast og vinna með nemendum og kennurum frá ólíkum löndum með fjölbreytt viðhorf og reynslu. Nemendur sem útskrifast úr raforkuverkfræði frá HR hafa því breiðara tengslanet á alþjóðavísu en venjan er á Íslandi.
Varanleg menntun: Fræði og vinnubrögð
Verkfræðinám í HR einkennist af traustri undirstöðu í stærðfræði og vísindum sem nýtist verkfræðingum alla sína starfsævi. Markviss verkefnavinna með raunveruleg viðfangsefni skerpir fræðilegu þekkinguna og eykur innsæi nemenda. Með því að notast við raunveruleg gögn og viðfangsefni fá nemendur þjálfun í aðferðarfræði og vinnubrögðum sem gagnast til framtíðar. Verkfræðingar sem útskrifast frá HR eru í stakk búnir að skapa nýja tækni og takast á við ófyrirséðar áskoranir í framtíðinni.
12+3 kerfið
Í náminu eru annirnar brotnar upp í tvo hluta. Fjögur námskeið eru kennd í 12 vikur og síðan er prófað úr þeim. Að prófum loknum taka við þriggja vikna námskeið þar sem námsefnið er sett í hagnýtt samhengi með verkefnavinnu, hópavinnu og/eða samstarfi við fyrirtæki.
Starfsnám
Nemendur geta sótt um starfsnám, en þannig auka þeir þekkingu sína á viðfangsefnum verkfræðinnar og öðlast góðan undirbúning fyrir störf að námi loknu. Starfsnám er í boði á vorönn, á lokaári BSc náms eða á fyrra ári MSc náms, og getur verið allt að 12 einingar.
Dæmi um fyrirtæki og stofnanir sem hafa tekið við nemendum í starfsnám:
• Actavis • Arion banki • Arion banki • Blóðbankinn • deCode • EFLA • Elkem • Fjármálaráðuneytið • Hjartavernd • HS Orka • Íslandsbanki • ÍSOR • Ikea • Landsbankinn • Landsnet • Landspítalinn • Landsvirkjun • Mannvit • Marel • Marorka • Olís • Orka náttúrunnar • Orkuveitan • Raförninn • Samey • Samskip • Securitas • Síminn • Sjóvá • Verkís • Vodafone • VSÓ ráðgjöf • Össur
CDIO-samstarfsnetið
Færni í hugmyndavinnu, verkefnastjórnun, samskiptum og kynningum er þjálfuð í ýmsum námskeiðum gegnum allt námið. Þetta samræmist hugmyndafræði CDIO, sem er samstarfsnet framsækinna háskóla sem kenna tæknigreinar og HR er þátttakandi í.
Í CDIO-aðferðafræðinni er lögð áhersla á samráð háskóla og atvinnulífs og fagfélaga. Mótun námsbrauta í anda CDIO á að tryggja að nemendur fái lausnamiðaða verkfræðilega færni sem vinnuveitendur sækjast eftir, án þess að slegið sé af fræðilegum kröfum.
Lesa meira um CDIO - Conceive, Design, Implement, Operate
Undirbúningur fyrir atvinnulífið
Allir nemendur á 3. ári BSc náms taka námskeiðið Verkfræði X sem er umfangsmikið 15 vikna námskeið þar sem nemendur þróa lausn á raunverulegu vandamáli fyrir samstarfsaðila.
Í námskeiðinu læra nemendur formlegar aðferðir til að greina þarfir samstarfsaðilans og afmarka mögulegar lausnir á verkefninu. Nemendur í mismunandi námsbrautum fá síðan úthlutað verkefni sem snýr að þeirra fagsviði og vinna í teymum að þróun og gerð afurðar sem er tilbúin til notkunar.
Verkfræði X byggir á vinsælum valnámskeiðum í HR þar sem nemendur hafa meðal annars búið til eldflaug, sjálfráðan kafbát, róbot með forritanlegu göngulagi til að prófa stoðtæki, hugbúnað til að verðleggja skuldabréf, skipulag á lager til að hámarka afköst í útkeyrslu, og hermunarlíkan fyrir innhringiver.
Í MSc námi geta nemendur unnið að meistaraverkefni í samstarfi við fyrirtæki. Þessi verkefni, sem hafa beina hagnýtingu fyrir atvinnulífið, eru kjörin leið fyrir nemendur að kynnast viðfangsefni og starfsemi fyrirtækis en jafnframt leið til að kynna sig fyrir iðnaðinum. Atvinnulífstengd verkefni opna dyr nemenda inn í fyrirtækin og oft hafa nemendur verið ráðnir til fyrirtækis sem þau unnu verkefni með. Hér má nálgast frekari upplýsingar um styrkt rannsóknarverkefni.
Skiptinám
Nemendur geta sótt um að fara í skiptinám við erlendan háskóla. Nemendur í BSc-námi þurfa að vera með 7 eða hærra í meðaleinkunn og að hafa lokið 60 einingum þegar þeir fara í skiptinámið. Skrifstofa alþjóðaskiptaveitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám.
Tvöföld gráða frá HR og Aalto-háskóla í Finnlandi
Nemendur geta lokið tvíþættri háskólagráðu í raforkuverkfræði í samstarfi við hinn virta tækniháskóla Aalto í Finnlandi.
Nýsköpun þvert á deildir
Nemendur í meistaranámi í HR geta valið námskeið í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum, þvert á deildir háskólans. Námskeiðin auka þekkingu og færni nemenda á öllum helstu sviðum nýsköpunar: fræðilegri þekkingu, skapandi nálgun viðfangsefna, vöruþróun, áætlanagerð, stjórnun og fjármálum. Ljúki nemendur 30 einingum á þessu sviði geta þeir útskrifast með nýsköpunar- og frumkvöðlafræði sem sérsvið.
Að námi loknu
Hönnun, upplýsingatækni og margvísleg úrlausn verkefna
Nemandi sem sérhæfir sig innan raforku getur unnið að margvíslegum verkefnum hjá fyrirtækjum sem reka raforkukerfi á Íslandi eins og Orkuveitu Reykjavíkur, Landsneti, Landsvirkjun, Orkubúi Vestfjarða og RARIK, eða hjá þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem koma að hönnun, vinnu við uppsetningu eða viðhaldi raforkukerfisins.
Rafmagnsverkfræðingar eru einnig eftirsóttir hjá hinum stærri notendum raforku eins og álverunum þar sem mörg úrlausnarefni snúa að raforkukerfum sem þessir notendur reka sjálfir. Þeir sinna auk þess fjölbreyttum tækni- og stjórnunarstörfum innan fyrirtækja sem leysa margþætt verkefni allt frá róbótafræði og tölvuþjónustu til samskipta- og upplýsingatækni.
Starfsréttindi sem verkfræðingur
Þegar nemendur hafa lokið MSc-gráðu í rafmagnsverkfræði, eftir grunnnám til BSc-gráðu, öðlast þeir starfsréttindi sem verkfræðingar. Meistaranámið í rafmagnsverkfræði er hægt að byggja ofan á grunnnám í verkfræði eða tæknifræði.
Starfsnámið veitir forskot
Nemendur í verkfræði við HR geta sótt um starfsnám. Markmið með starfsnámi er að auka þekkingu nemenda á því sviði sem þeir stunda nám á og búa þá undir störf að námi loknu.
Skipulag MSc
Til að öðlast starfsréttindi sem verkfræðingur þarf að BSc-námi loknu að ljúka tveggja ára MSc-námi.
Sérhæfing og einstaklingsmiðað nám
Í framhaldsnámi afla nemendur sér sérfræðiþekkingar og hagnýtrar tækniþekkingar. Nemendur gera einstaklingsmiðaða námsáætlun í samráði við leiðbeinanda, allt eftir áhugasviði. Námið er rannsóknartengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar.
MSc nám - 120 einingar - 2 ár
MSc 1. ár | |
---|---|
Haust | Vor |
|
|
MSc 2. ár | |
---|---|
Haust | Vor |
Útskrift með MSc í verkfræði og skilyrðum um lögverndað starfsheiti sem verkfræðingur fullnægt |
---|
Meistaraverkefni
Valnámskeiðum er ætlað að auka skilning og undirbúa rannsóknarefni nemandans. Meistaraverkefni er 60 einingar, unnið á lokaári.
Skiptinám og starfsnám
Nemendur geta sótt um starfsnám á vorönn. Nemendur geta sótt um skiptinám á haust- eða vorönn.
Annað
Aðstaða
Þjónusta og góður aðbúnaður
Öll kennsla fer fram í háskólabyggingu HR í Nauthólsvík. Þar er einnig aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.
Verkleg kennsla
Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar. Nemendur í rafmagnsverkfræði hafa aðgang að rafeindatæknistofu. Auk þess hafa þeir aðgang að efnafræðistofu og í sumum tilvikum aðstöðu í kjallara háskólabyggingarinnar fyrir stærri verkefni. Vísindamenn við véla- og rafmagnssvið eru jafnframt með rannsóknarstofur þar sem framkvæmdar eru tilraunir.
OrkutæknistofaÍ orkutæknistofunni er safn af tilraunum er lúta að orku og orkunýtingu. Nemendur í námskeiðum á borð við varmafræði, varmaflutningsfræði, straumfræði og tengdum greinum sækja verklegan hluta námsins í þessa stofu og framkvæma tilraunir er tengjast þeim viðfangsefnum. Orkutæknistofan býður upp á góða aðstöðu fyrir rannsóknaverkefni og lokaverkefni nemenda í grunnnámi og meistaranámi í verkfræði og tæknifræði. Formula Student lið Háskólans í Reykjavík hefur aðsetur í stofunni um þessar mundir. Ábyrgðarmenn verkstæðis eru Gísli Freyr Þorsteinsson og Indriði Ríkharðsson.
Rafeindatæknistofa
Í rafeindatæknistofu er unnið að verkefnum og tilraunum á sviði rafeindatækni, rafmagnsfræði, raforku, stýringum og sjálfvirkni. Í stofunni er fjölbreytt safn af verklegum tilraunum er tengjast námsefni á þessum sviðum. Stofan býður jafnframt upp á aðsetur fyrir nemendur sem vinna að stærri verkefnum eða lokaverkefnum í grunnnámi eða meistaranámi. Í stofunni er fjöldinn allur af tækjum og mælitækjum, á borð við sveiflusjár, örtölvur, AD-breytur, iðnaðarróbóta o.s.frv. Mikið safn er af íhlutum fyrir rásavinnu og góð aðstaða til að setja saman rásir.
Kennslustofur og lesherbergi
Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Sjá fleiri myndir af aðstöðunni í HR.
Góð þjónusta
Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.
Verslanir og kaffihús
Í HR er jafnframt Háskólabúðin sem selur helstu nauðsynjavörur, kaffihús, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.
Kennarar
Vísindamenn og sérfræðingar
Nemendur í rafmagnsverkfræði njóta leiðsagnar öflugra vísindamanna á fagsviðinu, tæknimanna og hönnuða innan háskólans og gestafyrirlesara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur.
Námsbrautarstjóri í raforkuverkfræði er Ragnar Kristjánsson.
Allir fastráðnir kennarar verkfræðideildar
HR og Aalto
"Double degree"
Háskólinn í Reykjavík býður nú upp á tvíþætta gráðu (e. double degree) í rafmagnsverkfræði á meistarastigi í samstarfi við Aalto-háskóla í Finnlandi.
-
Tveggja ára nám, 120 einingar.
-
Nemendur þurfa að klára tvær annir í hvorum skóla fyrir sig.
-
Klára þarf 60 einingar frá hvorum skóla, þar af 30 einingar vegna meistaraprófsritgerðar með leiðbeinendum frá báðum skólum.
-
Vinsamlega hafið samband við Mohamed Abdelfattah: abdelfattah@ru.is, lektor við verkfræðideild til að fá frekari upplýsingar.
Inntökuskilyrði
MSc í raforkuverkfræði
Gert er ráð fyrir að nemandi hafi grunngráðu (BSc) í rafmagns- eða raforkuverkfræði. Hafi nemandi annan bakgrunn getur viðkomandi þurft að bæta við námskeiðum úr grunnnámi. Í slíkum tilvikum er ætlast til að nemandi klári þessi námskeið á fyrsta námsári sínu.
Umsóknarfrestur
Fyrir haustönn: Frá 5. febrúar til 30. apríl
Getum við aðstoðað?
Name | Title | Contact | Description | |
---|---|---|---|---|
![]() | Alisha R. Moorhead | Program Administrator | ise@ru.is | Prospective students may reach out for questions regarding any of our graduate programmes. |
![]() | Jacob Kaminski | Program Administrator | ise@ru.is | Prospective students may reach out for questions regarding any of our graduate programmes. |