Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Sidekick Health leitar að sumarstarfsmanni í fjármálateymi fyrirtækisins. Um er að ræða fullt starf, með möguleika á hlutastarfi í framhaldi. Sidekick býður upp á sveigjanlegt starfsumhverfi og vinnutíma. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið!


Helstu verkefni

  • Bókun reikninga, samþykktir og eftirfylgni
  • Afstemmingar og samskipti við lánardrottna
  • Önnur tilfallandi verkefni

Reynsla og þekking

  • Reynsla af bókarastarfi
  • Kunnátta á bókhaldskerfi
  • Nákvæmni og talnagleggni
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Samviskusemi, jákvæðni og sjálfstæði

Umsóknarfrestur: 27. maí 2024

Um Sidekick Health

Sidekick Health er alþjóðlegt nýsköpunarfyrirtæki í heilsutækni, stofnað á Íslandi. Fyrirtækið framleiðir stafrænar lausnir til að bæta útkomur hefðbundinna lyfjagjafa og styðja við fjarvöktun sjúklinga, með það að markmiði að efla notendur og bæta lífsægði þeirra.