Sumarstarf á framkvæmdasviði Reita
Reitir leita að metnaðarfullum og skipulögðum háskólanema í sumarstarf á framkvæmdasviði félagsins. Starfið er fjölbreytt og lifandi og býður upp á tækifæri til að vinna í kjarna framkvæmdaverkefna Reita, sem felast meðal annars í greiningu, gagnaöflun og skráningu verkefna sem snúa að viðhaldi og framkvæmdum fasteigna. Starfið felur einnig í sér afleysingar vegna sumarleyfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Heimsóknir í fasteignir félagsins til að greina valin eigindi eigna og skráning gagna í miðlægt kerfi
- Greina og uppfæra viðhaldsþörf fasteigna með yfirferð teikninga, mælingum og uppfærslu upplýsinga í viðhaldslíkani
- Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum á framkvæmdasviði eftir þörfum
- Afleysingar í sumarfríum og almenn aðstoð við verkefnastjóra á framkvæmdasviði
Menntun og kröfur
- Háskólanemi á sviði tæknifræða, t.d. byggingafræði eða byggingatæknifræði
- Gott skipulag og nákvæmni í vinnubrögðum
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
- Góð þekking á Excel og almenn tölvukunnátta
- Einnig kemur til greina nemi úr öðrum greinum ef viðkomandi hefur áhuga á verkefnum sem tengjast framkvæmdum, viðhaldi fasteigna og stýringu þeirra.
Við hvetjum áhugasama nemendur til að senda inn ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 29.mars 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Hlín Daníelsdóttir (arnah@reitir.is)
Um Reiti
Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. Innan eignasafns Reita eru um 460 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis í rekstri auk 700 íbúða og 140 þúsund fermetra atvinnuhúsnæðis í þróun.
Við leggjum áherslu á sjálfbæra uppbyggingu innviða og langtíma leigusambönd þar sem sameiginlegur ávinningur leigutaka, okkar og samfélagsins er í forgrunni. Fyrirtækið er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.
- Umsóknarfrestur er til og með 29.mars 2026.
- Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Hlín Daníelsdóttir (arnah@reitir.is)
