Sumarstarf hjá Myndstef
Myndstef eru höfundaréttarsamtök fyrir myndhöfunda og umsýslustofnun á sviði höfundaréttar. Samtökin starfa ekki í hagnaðarskyni. Myndstef auglýsir eftir laganema til starfa sumarið 2026, í allt að tvo mánuði, til að sinna almennum skrifstofustörfum og störfum á sviði höfundaréttar, s.s. skrif á sviði höfundaréttar, athugun á höfundaréttarbrotum og tilfallandi verkefni tengd höfundarétti. Vinnutími og tímabil er samkvæmt samkomulagi.
- Tegund starfs: Sumarstarf 2026.
- Fyrirtæki/samtök: Myndstef - Myndhöfundasamtök Íslands
- Umsóknarfrestur (til og með): 04/30/2026
Hæfniskröfur
Að hafa að lágmarki lokið tveimur áföngum í höfundarétti og / eða hugverkarétti. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á höfundarétti og búa yfir skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Nafn tengiliðs: Vera Sveinbjörnsdóttir
- Netfang tengiliðs: vera@myndstef.is
- Símanúmer tengiliðs: 8622811
- Heimilisfang fyrirtækis: Hafnarstræti 5, 3. hæð
- Vefsíða fyrirtækis: http://www.myndstef.is
- Nánari upplýsingar veitir Vera Sveinbjörnsdóttirá netfangið vera@myndstef.is