Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Sumarstarf í bókhaldi hjá Reitum

Reitir leita að talnaglöggum og metnaðarfullum háskólanema í sumarstarf á fjármálasviði félagsins. Um er að ræða fullt starf yfir sumarið, með möguleika á hlutastarfi í framhaldinu samhliða námi. Starfið býður upp tækifæri til að taka virkan þátt í daglegum verkefnum bókhalds.

Helstu verkefni

  • Aðstoð við skráningu og afstemmingu fjárhagsupplýsinga
  • Vinna við móttöku og skráningu reikninga
  • Almenn aðstoð við bókhald og skjalaumsýslu
  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði

Hæfniskröfur

  • Háskólanemi í námi sem nýtist í starfi
  • Góð færni í Excel og almenn tölvukunnátta.
  • Vilji til að læra og þróa sig áfram í fjármálastarfi
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Reynsla af bókhaldi eða bókhaldskerfum er kostur

Umsóknarfrestur er til og með 29.mars 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Hlín Daníelsdóttir (arnah@reitir.is)

Um Reiti

Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. Innan eignasafns Reita eru um 460 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis í rekstri auk 700 íbúða og 140 þúsund fermetra atvinnuhúsnæðis í þróun.

Við leggjum áherslu á sjálfbæra uppbyggingu innviða og langtíma leigusambönd þar sem sameiginlegur ávinningur leigutaka, okkar og samfélagsins er í forgrunni. Fyrirtækið er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.

  • Umsóknarfrestur er til og með 29.mars 2026.
  • Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Hlín Daníelsdóttir (arnah@reitir.is)