Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Tímavinna hjá Opna háskólanum – þjónusta, sala og CRM

Háskólinn í Reykjavík - Hlutastarf

Opni háskólinn við Háskólann í Reykjavík leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi í tímavinnu með áhuga á þjónustu, sölu og samskiptum við viðskiptavini.

Við leitum að aðila sem hefur áhuga á að læra á og vinna með CRM-kerfi – kerfi sem heldur utan um samskipti við kúnna, söluferla og tengslamyndun. Starfið felur í sér þátttöku í daglegum samskiptum, eftirfylgni og stuðningi við sölu- og markaðsstarf Opna háskólans.

Helstu verkefni:

  • Aðstoð við samskipti við viðskiptavini og fyrirtæki
  • Skráning og eftirfylgni í CRM-kerfi
  • Stuðningur við sölu- og markaðsverkefni
  • Almenn aðstoð innan teymis

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur áhuga á þjónustu og sölu
  • Er öruggur í samskiptum og lausnamiðaður
  • Vill læra og tileinka sér ný kerfi og vinnubrögð
  • Hefur áhuga á námi til lífstíðar, endur- og símenntun
  • Getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð

Við bjóðum:

  • Sveigjanlega tímavinnu sem hægt er að samræma námi
  • Dýrmæta reynslu af CRM-kerfum og söluferlum
  • Tækifæri til að kynnast starfsemi sem tengir saman háskólasamfélag og atvinnulíf
  • Vinnu með skemmtilegu og metnaðarfullu teymi í Opna háskólanum

Ef þú hefur áhuga á að vera hluti af kraftmiklu umhverfi þar sem samskipti, þróun og símenntun eru í forgrunni, sendu okkur stutta kynningu á þér og ferilskrá.

Nánari upplýsingar veitir Ingunn S. Unnsteinsd. Kristensen, forstöðumaður Opna háskólans í HR (ingunnu@ru.is).

HR er eftirsóknarverður vinnustaður og þar er lögð áhersla á fyrsta flokks aðstöðu í nærandi umhverfi, persónuleg samskipti, framsæknar kennsluaðferðir og nútímalega starfshætti. HR fagnar fjölbreytileika og mikið er lagt upp úr jafnrétti og virðingu fyrir einstaklingum og störfum þeirra. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3.700 í sjö deildum og starfsfólk er um 330 talsins, auk 350 stundakennara.

  • Nánari upplýsingar veitir Ingunn S. Unnsteinsd. Kristensen, forstöðumaður Opna háskólans í HR (ingunnu@ru.is).