Hátækniverkfræði MSc

Sjálfvirk tæki og róbotar er tækni sem er notuð í iðnað og framleiðslu en jafnframt í alls kyns búnað sem við notum í daglegu lífi eins og bifreiðar, heimilistæki, gervilíffæri, stoðtæki og leikföng. Í hátækniverkfræði sameina nemendur viðfangsefni rafmagnsverkfræði og vélaverkfræði og læra hönnun flókins tæknibúnaðar.

Um námið

Nemendur og kennarar segja frá námi í hátækniverkfræði við HR

Nemendur þróa nýja tækni

Í BSc-námi í hátækniverkfræði er lagður fræðilegur grunnur sem síðan er byggt á til að skapa breiða þekkingu á stýrikerfum, forritun og hugbúnaðargerð. Nemendur fá ótal tækifæri til þess að leysa raunveruleg vandamál og læra á hönnunarferlið sem spannar allt frá hugmynd, hönnun og smíði að virkni. Viðfangsefnin eru margvísleg en eiga það sameiginlegt að þjálfa nemendur í þróun á hugbúnaði, rafeinda- og tölvubúnaði og vélbúnaði.

Lifandi nám

Með því að glíma við raunhæf verkefni og finna lausnir við vandamálum hljóta nemendur góðan undirbúning fyrir störf að námi loknu. Hér eru nokkur dæmi um það hvernig kennslan og námsefnið miðar að því að veita nemendum dýrmæta reynslu.

12+3 kerfið

Í náminu eru annirnar brotnar upp í tvo hluta. Fjögur námskeið eru kennd í 12 vikur og síðan er prófað úr þeim. Að prófum loknum taka við þriggja vikna námskeið þar sem námsefnið er sett í hagnýtt samhengi með verkefnavinnu, hópavinnu og/eða samstarfi við fyrirtæki.

Starfsnám

Nemendur geta sótt um starfsnám, en þannig auka þeir þekkingu sína á viðfangsefnum verkfræðinnar og öðlast góðan undirbúning fyrir störf að námi loknu. Starfsnám er í boði á vorönn, á lokaári BSc náms eða á fyrra ári MSc náms, og getur verið allt að 12 einingar.

Dæmi um fyrirtæki og stofnanir sem hafa tekið við nemendum í starfsnám:

• Actavis • Arion banki • Arion banki • Blóðbankinn • deCode • EFLA • Elkem • Fjármálaráðuneytið • Hjartavernd • HS Orka • Íslandsbanki • ÍSOR • Ikea • Landsbankinn • Landsnet • Landspítalinn • Landsvirkjun • Mannvit • Marel • Marorka • Olís • Orka náttúrunnar • Orkuveitan • Raförninn • Samey • Samskip • Securitas • Síminn • Sjóvá • Verkís • Vodafone • VSÓ ráðgjöf • Össur

CDIO-samstarfsnetið

Færni í hugmyndavinnu, verkefnastjórnun, samskiptum og kynningum er þjálfuð í ýmsum námskeiðum gegnum allt námið. Þetta samræmist hugmyndafræði CDIO, sem er samstarfsnet framsækinna háskóla sem kenna tæknigreinar og HR er þátttakandi í.

Í CDIO-aðferðafræðinni er lögð áhersla á samráð háskóla og atvinnulífs og fagfélaga. Mótun námsbrauta í anda CDIO á að tryggja að nemendur fái lausnamiðaða verkfræðilega færni sem vinnuveitendur sækjast eftir, án þess að slegið sé af fræðilegum kröfum.

Lesa meira um CDIO - Conceive, Design, Implement, Operate

Undirbúningur fyrir atvinnulífið

Allir nemendur á 3. ári BSc náms taka námskeiðið Verkfræði X sem er umfangsmikið 15 vikna námskeið þar sem nemendur þróa lausn á raunverulegu vandamáli fyrir samstarfsaðila.

Í námskeiðinu læra nemendur formlegar aðferðir til að greina þarfir samstarfsaðilans og afmarka mögulegar lausnir á verkefninu. Nemendur í mismunandi námsbrautum fá síðan úthlutað verkefni sem snýr að þeirra fagsviði og vinna í teymum að þróun og gerð afurðar sem er tilbúin til notkunar.

Verkfræði X byggir á vinsælum valnámskeiðum í HR þar sem nemendur hafa meðal annars búið til eldflaug, sjálfráðan kafbát, róbot með forritanlegu göngulagi til að prófa stoðtæki, hugbúnað til að verðleggja skuldabréf, skipulag á lager til að hámarka afköst í útkeyrslu, og hermunarlíkan fyrir innhringiver.

Í MSc námi geta nemendur unnið að meistaraverkefni í samstarfi við fyrirtæki. Þessi verkefni, sem hafa beina hagnýtingu fyrir atvinnulífið, eru kjörin leið fyrir nemendur að kynnast viðfangsefni og starfsemi fyrirtækis en jafnframt leið til að kynna sig fyrir iðnaðinum. Atvinnulífstengd verkefni opna dyr nemenda inn í fyrirtækin og oft hafa nemendur verið ráðnir til fyrirtækis sem þau unnu verkefni með. Hér má nálgast frekari upplýsingar um styrkt rannsóknarverkefni.

Skiptinám

Nemendur geta sótt um að fara í skiptinám við erlendan háskóla. Nemendur í BSc-námi þurfa að vera með 7 eða hærra í meðaleinkunn og að hafa lokið 60 einingum þegar þeir fara í skiptinámið. Skrifstofa alþjóðaskipta veitir frekari upplýsingar um hvert hægt er að fara í skiptinám.

Nýsköpun þvert á deildir

Nemendur í meistaranámi í HR geta valið námskeið í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum þvert á deildir háskólans. Námskeiðin auka þekkingu og færni nemenda á öllum helstu sviðum nýsköpunar: fræðilegri þekkingu, skapandi nálgun viðfangsefna, vöruþróun, áætlanagerð, stjórnun og fjármálum. Ljúki nemendur 30 einingum á þessu sviði geta þeir útskrifast með nýsköpunar- og frumkvöðlafræði sem sérsvið.

Að námi loknu

Vélbúnaður og hugbúnaður

Sérhæfing nemenda á sviði stýritækni, iðntölvustýringa og rafeindatækni gerir þá ákjósanlega starfskrafta. Námið nýtist þeim sem vilja vinna við raf- og rafeindastýrðan vélbúnað, hanna vélhluti og sinna þróun hugbúnaðarkerfa. Styrkleiki hátækniverkfræðinga liggur í samþættingu íhluta (vélbúnaður) og upplýsingatækni (hugbúnaður).

Góður grunnur að byggja á

Eftir þriggja ára grunnnám til BSc-gráðu bæta nemendur við sig tveggja ára námi til MSc-gráðu til að öðlast full starfsréttindi sem verkfræðingar. Hátækniverkfræði veitir góða undirstöðu fyrir framhaldsnám í fjölmörgum verkfræðigreinum eins og hátækniverkfræði, vélaverkfræði og rafmagnsverkfræði. Val á BSc-námsbraut í verkfræði þarf ekki að takmarka möguleika á verkfræðinámsbraut á meistarastigi.  

Starfsréttindi sem verkfræðingar

Verkfræðinám samanstendur af 3ja ára (180 einingar) grunnnámi og tveggja ára (120 einingar) MSc námi. Til að öðlast starfsréttindi og leyfi til að nota lögverndaða stafsheitið verkfræðingur þarf að ljúka MSc-gráðu í samræmi við kröfur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Starfsnámið veitir forskot

Nemendur í verkfræði við HR geta sótt um starfsnám í bæði grunnnámi og meistaranámi. Markmið með starfsnámi er að auka þekkingu nemenda á því sviði sem þeir stunda nám á og búa þá undir störf að námi loknu.

Skipulag MSc

Til að öðlast starfsréttindi sem verkfræðingur þarf að BSc námi loknu að ljúka tveggja ára MSc námi.

Sérhæfing og einstaklingsmiðað nám

Í framhaldsnámi afla nemendur sér sérfræðiþekkingar og hagnýtrar tækniþekkingar. Nemendur gera einstaklingsmiðaða námsáætlun í samráði við leiðbeinanda, allt eftir áhugasviði. Námið er rannsóknartengt og getur nemandinn valið að nýta sér það til umtalsverðrar sérhæfingar.

MSc nám - 120 einingar - 2 ár

MSc 1. ár
HaustVor
MSc 2 . ár
Haust Vor

Útskrift með MSc í verkfræði og skilyrðum um lögverndað starfsheiti sem verkfræðingur fullnægt

Meistaraverkefni

Valnámskeiðum er ætlað að auka skilning og undirbúa rannsóknarefni nemandans. Meistaraverkefni er 30 einingar, unnið á lokaönn. Hægt er að sækja um að vinna 60 eininga meistaraverkefni og taka þá samsvarandi færri valnámskeið.

Skiptinám og starfsnám

Nemendur geta sótt um starfsnám (12 einingar) á vorönn. Nemendur geta sótt um skiptinám á haust- eða vorönn.

Annað

Aðstaða

Þjónusta og góður aðbúnaður

Öll kennsla fer fram í háskólabyggingu HR. Þar er einnig aðstaða til verklegrar kennslu, hópavinnuherbergi, mötuneyti, náms- og starfsráðgjöf og önnur þjónusta við nemendur.

Verkleg kennsla

Í HR er áhersla lögð á verkkunnáttu og þjálfun ásamt fræðilegri undirstöðu. Því er aðstaða til verklegrar kennslu til fyrirmyndar. Nemendur í hátækniverkfræði hafa aðgang að rafeindatæknistofu, orkutæknistofu og vélsmiðju. Auk þess hafa þeir aðgang að efnafræðistofu og í sumum tilvikum kjallara háskólabyggingarinnar fyrir stærri verkefni og tilraunir.

RafeindatæknistofaLab

Í rafeindatæknistofu er unnið að verkefnum og tilraunum á sviði rafeindatækni, rafmagnsfræði, raforku, stýringum og sjálfvirkni. Í stofunni er fjölbreytt safn af verklegum tilraunum er tengjast námsefni á þessum sviðum. Stofan býður jafnframt upp á aðsetur fyrir nemendur sem vinna að stærri verkefnum eða lokaverkefnum í grunnnámi eða meistaranámi. Í stofunni er fjöldinn allur af tækjum og mælitækjum, á borð við sveiflusjár, örtölvur, AD-breytur, iðnaðarróbóta o.s.frv. Mikið safn er af íhlutum fyrir rásavinnu og góð aðstaða til að setja saman rásir. Ábyrgðarmaður verkstæðis er Hannes Páll Þórðarson.

Vélsmiðja
HR_des032Vel búin vélsmiðja er mikilvægur þáttur í verkfræðinámi því þar er bilið brúað milli þess fræðilega og þess hagnýta. Flestir nemendur sem útskrifast frá HR með verkfræðigráðu hafa kynnst vélsmíði að einhverju marki, til að mynda unnið í rennibekk og fræsivél við að útfæra hugmyndir og hönnun sína. Í stofunni eru í boði inngangsnámskeið í vélsmíði, þar sem farið er yfir öryggismál og nemendum kennd viðeigandi handtök. Nemendur búa að þessari reynslu á seinni stigum náms og hafa aðgang að vélsmiðjunni til að leysa skemmtileg og raunveruleg verkfræðileg viðfangsefni.

Í vélsmiðjunni eru þrír rennibekkir, tvær fræsivélar, CNC rennibekkur og fræsivél, suðutæki, laser-skurðarvél, ásamt öðrum hefðbundnum verkfærum. Ábyrgðarmenn verkstæðis eru Gísli Freyr Þorsteinsson og Indriði Ríkharðsson

OrkutæknistofaOrkutaeknistofa

Í orkutæknistofunni er safn af tilraunum er lúta að orku og orkunýtingu. Nemendur í námskeiðum á borð við varmafræði, varmaflutningsfræði, straumfræði og tengdum greinum sækja verklegan hluta námsins í þessa stofu og framkvæma tilraunir er tengjast þeim viðfangsefnum. Orkutæknistofan býður upp á góða aðstöðu fyrir rannsóknaverkefni og lokaverkefni nemenda í grunnnámi og meistaranámi í verkfræði og tæknifræði. Formula Student lið Háskólans í Reykjavík hefur aðsetur í stofunni um þessar mundir. Ábyrgðarmenn verkstæðis eru Gísli Freyr Þorsteinsson og Indriði Ríkharðsson.

Kennslustofur og lesherbergi

Húsnæði Háskólans í Reykjavík býður upp á afar góða aðstöðu til kennslu, lesturs og samvinnu nemenda. Kennslustofur eru vel búnar og nemendur geta nýtt sér hópavinnuherbergi. Almenn aðstaða er opin nemendum allan sólarhringinn. Sjá fleiri myndir af aðstöðunni í HR. 

Góð þjónusta

Í háskólabyggingunni er greiður aðgangur að náms- og starfsráðgjöf, alþjóðaskrifstofu og tækniaðstoð. Á bókasafninu er góð og fjölbreytt vinnuaðstaða. Safnið býður aðgang að bókum og fræðigreinum og upplýsingafræðingar eru með opna tíma þar sem nemendur geta litið við og fengið ráðleggingar og aðstoð vegna heimildavinnu.

Verslanir og kaffihús

Í HR er jafnframt Háskólabúðin sem selur helstu nauðsynjavörur, Te og kaffi, æfingasalur World Class og Málið veitingasala.

Te-og-kaffi

Kennarar

Vísindamenn og sérfræðingar

Nemendur í vélaverkfræði njóta leiðsagnar öflugra vísindamanna á fagsviðinu, tæknimanna og hönnuða innan háskólans, og gestafyrirlesara með sérfræðiþekkingu úr atvinnulífinu. Kennarar við HR eru að jafnaði í miklum samskiptum við nemendur. 

Námsbrautarstjóri í hátækniverkfræði er Elias August.

Allir fastráðnir kennarar verkfræðideildar

Inntökuskilyrði

MSc í hátækniverkfræði 

Gert er ráð fyrir að nemandi hafi grunngráðu (BSc) í rafmagns- eða hátækniverkfræði. Hafi nemandi annan bakgrunn getur viðkomandi þurft að bæta við námskeiðum úr grunnnámi. Í slíkum tilvikum er ætlast til að nemandi klári þessi námskeið á fyrsta námsári sínu.

Umsóknarfrestur

Fyrir vorönn: 15. október - 5. desember

Fyrir haustönn: Frá 5. febrúar til 30. apríl

Getum við aðstoðað?

Sóley Davíðsdóttir

Verkefnastjóri - MSc verkfræði


Fara á umsóknarvef

Var efnið hjálplegt? Nei