Hvernig vel ég háskólanám?
Spennandi, en stundum flókið
Hvers vegna HR?
- Leiðandi í rannsóknum
Háskólinn í Reykjavík er í 7. sæti allra háskóla á heimsvísu, í fjölda tilvitnana í vísindagreinar eftir akademískt starfsfólk. - Hagnýtt nám fyrir þína framtíð
87,3 % nemenda HR sem ætla á vinnumarkað voru komnir með vinnu við útskrift, samkvæmt Útskriftarkönnun HR á vegum Maskínu vorið 2022. - Framúrskarandi á Norðurlöndum
HR er í 19. sæti af háskólum á Norðurlöndum á lista Times Higher Education University Rankings. Um 80 háskólar eru á Norðurlöndum og 37 þeirra eru á lista THE og þar er HR um miðbikið. - ... og framúrskarandi á heimsvísu
HR er meðal 2% bestu háskóla heims sem eru um 25.000 talsins. - Framúrskarandi í sínum stærðarflokki
HR er í 12. sæti yfir 76 bestu háskóla heims með færri en 5000 nemendur. - Efstur á Íslandi samkvæmt THE
HR er efstur háskóla á Íslandi í alþjóðlegu mati á kennslu, rannsóknum og alþjóðastarfi samkvæmt Times Higher Education University Rankings. - Ánægðir nemendur
97,5 % nemenda við HR telja nám við háskólann góðan undirbúning fyrir atvinnulífið, samkvæmt Útskriftarkönnun HR sem framkvæmd var af Maskínu vorið 2022.
Skapaðu framtíðina í HR
Á tímamótum þarf oft að taka ákvarðanir sem geta verið erfiðar. Það sem gerir valið erfitt er að eitt er ekki endilega betra en annað. Námsval getur verið flókið ferli þar sem valið snýst ekki bara um nám heldur ákveðinn farveg sem á sinn þátt í að skapa framtíð nemandans.
Viðtal við Grétu Matthíasdóttur forstöðukonu nemendaráðgjafar um val á námi og hvað HR hefur uppá að bjóða fyrir nemendur HR.
Menntun til framtíðar - í þínum höndum
Það er gott að hafa það í huga að hver og einn nemandi ræður mestu um það hvað viðkomandi fær út úr náminu. Nemendum í HR eru boðin fjölbreytt tæki og tól sem þau geta notað til að móta námið sem best eftir því hvert þau stefna að lokinni útskrift og leitast er við að gæði kennslu og þjónustu séu í hæsta gæðaflokki. Hvort nemendur ákveða að taka valfög í öðrum greinum, taka þátt í þverfaglegum námskeiðum, verkefnum með fyrirtækjum, skiptinámi eða starfsnámi er þó undir þeim sjálfum komið. Þessi tækifæri efla nemendur líka sem einstaklinga enda mjög þroskandi að stíga út fyrir þægindarammann og vinna með fólki sem viðkomandi hefur aldrei hitt áður.
Fjórða iðnbyltingin
Hin svokallaða fjórða iðnbylting mun hafa í för með sér mikla breytingu á störfum í næstu framtíð. Nú þegar krefjast störf fjölbreyttari sérfræðiþekkingar og færni en áður og skörun milli fræðigreina er meiri. Nemendur sem útskrifast úr háskóla í dag munu að öllum líkindum sækja sér endurmenntun allan starfsferilinn. Fyrir háskólanema sem eru að hefja nám í dag þýðir þetta að þau þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að loka neinum dyrum að baki sér þegar nám er valið.
Sjálfsþekking
Samkvæmt náms- og starfsráðgjöfum Háskólans í Reykjavík skiptir ákveðin sjálfsþekking máli þegar nám er valið. Mælt er með að byrja á eftirfarandi skrefum:
- Öðlast skýran skilning á sjálfum sér, áhugasviði, styrkleikum og metnaði
- Hvers krefjast störfin sem þú ert helst að velta fyrir þér og hvað hafa þau upp á að bjóða?
- Mikilvægt er að taka mið af eigin áhugasviðum þegar ákvarðanir um nám og störf eru teknar
Um styrkleika
Styrkleikakannanir geta reynst gagnleg tól til að komast að því hvar styrkleikar manns liggja. VIA styrkleikakönnunina má taka að kostnaðarlausu hér og frekari upplýsingar um styrkleika- og áhugasviðspróf má nálgast hjá náms- og starfsráðgjöf Háskólans í Reykjavík.
Ráð fagaðila
Náms- og starfsráðgjafar Háskólans í Reykjavík eru sérfræðingar í að ráðleggja fólki sem hefur spurningar um háskólanám og framtíðarstörf. Það er hægt að panta viðtal við ráðgjafa og senda þeim tölvupóst.
Þín ákvörðun - ekki annarra
Það getur hjálpað mörgum að velta fyrir sér hvort þessir þættir hafi of mikil áhrif á námsvalið:
- Óljósar hugmyndir um nám og störf
- Virðing starfa
- Kynjað námsval
- Áhrif annarra