Heilbrigð tölvunotkun barna (stafrænt námskeið)
Stafrænt námskeið fyrir foreldra sem hægt er að taka á eigin hraða.
Á námskeiðinu Heilbrigð tölvunotkun barna fá foreldrar hagnýta innsýn og verkfæri til að skapa gott jafnvægi í skjánotkun barna og styðja við líkamlega, andlega og félagslega vellíðan þeirra. Námskeiðið er unnið í samstarfi við sálfræðideild HR, tölvunarfræðideild HR og íþróttafræðideild HR.
Fjallað er meðal annars um skjátíma og hreyfingu, líkamsbeitingu, sálfræðileg áhrif skjánotkunar og hvernig óheilbrigð notkun eða skjáfíkn getur þróast. Einnig er farið yfir heim tölvuleikja, snjallforrita og samfélagsmiðla, samskipti barna á netinu og mikilvægi persónuverndar og netöryggis. Þátttakendur læra að þekkja meðal annars netsvindl, óæskilegt efni og neteinelti og fá leiðbeiningar um hvernig hægt er að ræða þessi mál við börn á uppbyggilegan hátt. Áhersla er jafnframt lögð á jákvæðar hliðar tækninnar og hvernig nýta má hana til sköpunar, náms og afþreyingar. Kynntar eru fjölskylduvænar lausnir, skapandi tölvuleikir, forritun fyrir börn og leiðir til að skapa öruggt og nærandi stafrænt umhverfi.
Meðal efnis á námskeiðinu er:
- Líkamleg heilsa og tölvunotkun
- Andleg heilsa og skjánotkun
- Tölvuleikir, snjallforrit og samfélagsmiðlar
- Netöryggi
- Skemmtun og lærdómsumhverfi
Efni frá Skema
Námskeiðið hentar foreldrum, kennurum, leiðbeinendum og öðrum sem vilja öðlast betri skilning á stafrænum heimi barna og styðja þau í að nýta tæknina á öruggan, heilbrigðan og uppbyggilegan hátt.
Skipulag og verð
- Verð: 6.500 kr.
Hagnýtar upplýsingar
- Sendu tölvupóst á starfsfólk Skema — skema@ru.is
- Sími: 599 6300