Jólafrí 2026 – Skapandi Tæknidagar
Skapandi Tæknidagar er verklegt STEAM-námskeið þar sem börn kanna tækni í gegnum leik og sköpun.
Helstu upplýsingar
- Undanfari: Enginn
- Aldur: 5 - 12 ára
Um námskeiðið
Skapandi Tæknidagar er skemmtilegt og fræðandi STEAM-námskeið þar sem börn kynnast tækni í gegnum skapandi og verkleg verkefni.
Nemendur byggja og vinna saman í Minecraft, hanna og forrita sína eigin tölvuleiki, vinna með þrívíddartækni (3D), stýra vélmennum og læra hvernig tölvur virka. Hjá yngri hópum verður lögð áhersla á grunnskilning á tölvum og tækni á meðan eldri nemendur einbeita sér meira að sköpun, hönnun og lausnamiðaðri hugsun í forritun, leikjagerð og 3D-hönnun. Allt námsefni er aðlagað að aldri þátttakenda.
Nemendum verður skipt í aldurshópa yfir daginn þar sem þeir munu framkvæma hluti með hliðsjón af aldri þeirra og getu.
| Könnuðir Hópur 1 | 5–6 ára |
| Hugsuðir Hópur 2 | 7–8 ára |
| Skaparar Hópur 3 | 9–10 ára |
| Hönnuðir Hópur 4 | 11–12 ára |
Heilbrigð skjánotkun
Til að skapa jafnvægi við skjávinnuna fléttum við inn verklegum STEAM-föndurverkefnum. Dagana 21. og 22. desember eru verkefnin með jólaþema og dagana 28.–30. desember með áramótaþema.
Auk þess nýtir Skema Hetjuspilið, kennslufræðilegt hlutverkaspil sem byggir upp orðaforða og félagsfærni í gegnum samvinnu. Spilað er í litlum hópum, 3–5 börn með leiðbeinanda, þar sem börnin leysa áskoranir með jákvæðum samskiptum. Spilið er hugsað sem mótvægi við skjáverkefnin í formi leiks.
Skipulag og verð
- Lengd: 5 dagar yfir jólafríið
- Lengd: 6 klst. á dag (hægt að velja staka daga eða fleiri saman)
- Tími: 08:30–15:30
- Verð: Verð: 15.900 kr. á dag, 28.900 kr. fyrir tvo daga, 41.900 kr. fyrir alla þrjá dagana 28.–30. desember
Hagnýtar upplýsingar
- Systkinaafsláttur: 15% afsláttur fyrir hvert systkini úr sömu fjölskyldu
- Skráning í gegnum Sportabler
- Hafa samband: Starfsfólk Skema — skema@ru.is, 599 6300