Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Rafíþróttir fyrir stelpur – Helgarnámskeið

Rafíþróttir fyrir stelpur – Helgarnámskeið

Rafíþróttadeild KR & Skema

Helstu upplýsingar
  • Undanfari:  Enginn
  • Aldur: 9 - 12 ára

Um námskeiðið

Helgarnámskeið eingöngu fyrir stelpur þar sem þátttakendur kynnast rafíþróttum í öruggu og hvetjandi umhverfi. Engin reynsla er nauðsynleg – námskeiðið hentar jafnt þeim sem hafa aldrei spilað í liði og þeim sem spila reglulega heima.

Hver æfing hefst á hreyfingu undir handleiðslu þjálfara, til dæmis teygjum, samhæfingaræfingum eða léttum leikjum. Þá taka við skipulagðar æfingar í tölvuleikjum þar sem þátttakendur æfa tæknileg atriði, samvinnu, samskipti innan liðs og samhæfingu augna og handa. Helginni lýkur á litlu móti þar sem allir fá að spreyta sig.

Áhersla er lögð á samvinnu, sjálfstraust og jákvæða leikjamenningu. Þátttakendur kynnast öðrum stelpum með sama áhugamál og fá að sjá hvernig rafíþróttaæfingar fara fram hjá KR & Skema. Næsta námskeið Rafíþróttadeildar KR & Skema hefst 11. janúar 2027 og helgarnámskeiðið er því gott tækifæri til að fá smjörþefinn af því sem er í boði.

Skipulag og verð
  • Dagar: laugardagur og sunnudagur 
  • Tími: 15:30–17:30 
  • Verð: 10.900 kr.
  • Dagsetningar: 21. og 22. nóvember 2026
Hagnýtar upplýsingar
  • Systkinaafsláttur: 15% afsláttur fyrir hvert systkini úr sömu fjölskyldu  
  • Skráning í gegnum Sportabler
  • Hafa samband: Starfsfólk Skema — skema@ru.is, 599 6300
Fara efst