Alþjóðleg heilavika í Háskólanum í Reykjavík
Í tilefni Alþjóðlegrar heilaviku 16.–22. mars býður Háskólinn í Reykjavík upp á fjölbreytta dagskrá fyrir almenning. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi heilarannsókna og efla fræðslu um heilann og heilahreysti.
Miðvikudagur 18. mars
Nemendakynningar
Kl. 10:10–11:50 – Sólin
Nemendur í námskeiðunum Hugsun, minni og tungumál og Hugræn taugavísindi kynna verkefni sín. Fjallað verður meðal annars um:
- afleiðingar heilaáverka
- áhrif hreyfingar á heilastarfsemi
- tengsl meltingarkerfisins og heilans
Kynningarnar eru opnar öllum og ætlaðar til fræðslu fyrir almenning.
Fyrirlestur: Taugasálfræði kulnunar
Kl. 12:00–13:00 – Stofa M104
Guðrún Rakel Eiríksdóttir, klínískur sálfræðingur og doktorsnemi, fjallar um hvað gerist þegar heilinn „brennur út“ og hvernig kulnun birtist út frá taugasálfræðilegu sjónarhorni.
Viðburður á Facebook
Föstudagur 20. mars
Fyrirlestur: Women’s Mental Health Across Life
Kl. 12:00–13:00 – Stofa V102
Donghao Lu, dósent við Karolinska Institutet, fjallar um hvernig andleg heilsa kvenna breytist á lífsleiðinni, frá tíðahring til tíðahvarfa.
Viðburður á Facebook
Laugardagur 21. mars
Heilasmiðja fyrir börn
Kl. 11:00–16:00 – Höfuðstöðin
Í samstarfi við sálfræðideild HR. Börn fá að fræðast um heilann, skoða líkön og búa til sitt eigið heilalíkan undir leiðsögn Maríu K. Jónsdóttur, taugasálfræðings og prófessors, ásamt sálfræðinemum. Öll börn taka heilalíkanið með heim og fá heilastrokleður að gjöf.
Viðburður á Facebook
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.