Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Börn og D-vítamín: hvað vitum við um stöðuna á Íslandi?

20. september, 12:00 - 13:00
HR-1
Skrá í dagatal

Barnalæknirinn Dr. Josko Markic heldur fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík um mikilvægi og hlutverk D-vítamíns, mánudaginn 20. september klukkan 12:00 í stofu M209. 

Ung stúlka situr og horfir út um gluggann

Dr. Markic er dósent við læknadeild háskólans í Split og vinnur einnig sem sérfræðingur á barnadeild háskólasjúkrahússins í Split. Undanfarin ár hafa rannsóknir hans beinst að hlutverki D-vítamíns en skortur á því getur leitt til alvarlegra heilsufarsvandamála og sjúkdóma. Hann beinir sjónum sínum í fyrirlestrinum að Íslandi, ekki síst þar sem sólarljós, sem er af skornum skammti hér norður í hafi, er nauðsynlegt fyrir myndun D-vítamíns. 

Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.

Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.

Fara efst