Forsetalistaathöfn
Nemendur taka við viðurkenningum fyrir árangur í námi
Miðvikudaginn 19. febrúar verður nemendum veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi árangur í námi. Þessir nemendur komast á forsetalista og fá niðurfelld skólagjöld næstu annar. Athöfnin fer fram í Sólinni, hefst klukkan 17:00 og tekur um 45 mínútur.
Nemendur á forsetalista eiga að mæta klukkan 16:45 og mega taka með sér 2-3 gesti. Boðið verður upp á hressingu eftir athöfnina.
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.