Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Frá áhættu til viðnámsþróttar: Aðlögun innviða að breyttu loftslagi

9. september, 12:00 - 13:30
Háskólinn í Reykjavík - Stofa M101
Skrá í dagatal

Þann 9. september verður haldinn hádegisfundur á vegum SIF Sustainability Institute and Forum, með stuðningi Verkfræðingafélags Íslands í samstarfi við bakhjarla SIF, Landsnet og Landsvirkjun. Fundurinn er hluti af Sjálfbærnidegi Háskólans í Reykjavík sem haldinn verður þennan dag.

Loftslagsbreytingar eru að breyta áhættumynd lífsnauðsynlegra innviða um allan heim, og Ísland er þar engin undantekning. Það þarf að aðlaga innviði samfélagsins okkar að kerfisbreytingum og  kerfisbundinni óvissu á tímum loftslagsbreytinga.  Fyrirtæki og stofnanir þurfa í auknum mæli að búa sig undir veðurfarsbreytingar og óvissu — þar á meðal öfgar í veðráttu, eins og ofsarigningar, flóð, storma og  til dæmis áhættu á borð við breytingar á hafstraumamynstrum eins og AMOC (Golfstraumurinn).  

Þessi hádegisfundur sameinar alþjóðlega sérfræðiþekkingu, þekkingu og reynslu úr íslensku atvinnulífi til að kanna hvernig samfélagið getur farið úr áhættuvitund yfir í viðnámsþrótt, aðlögun, og ábyrga langtímaákvarðanatöku. 

Dagskrá 

12:00–12:05 | Opnunarorð 
Helgi Þór Ingason, prófessor og forstöðumaður SIF 

12:05–12:35 | Aðalfyrirlestur: Frá áhættu til viðnámsþróttar: Aðlögun mikilvægra innviða að breyttu loftslagi og óvissri framtíð 
Prof. Martin Drews (DTU) 

12:35–12:45 | Undirbúningur fyrir breytt loftslag 
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og sjálfbærni hjá Landsvirkjun 

12:45–12:55 | Viðnámsþróttur – Ísland og Landsnet 
Halldór Halldórsson, öryggis- og áhættustjóri hjá Landsneti 

12:55–13:05 | Uppbygging viðnámsþróttar gagnvart loftslagsbreytingum á Íslandi: Hvar stöndum við nú? Anna Hulda Ólafsdóttir, forstöðumaður Þjónustu- og aðlögunarmiðstöðvar loftslagsmála hjá Veðurstofu Íslands 

13:05–13:35 | Pallborðsumræður: „Hvernig getur Ísland farið frá loftslagsáhættuvitund yfir í raunhæfan viðnámsþrótt?" 

Þátttakendur í pallborði: 
Prof. Martin Drews 
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir – Landsvirkjun 
Halldór Halldórsson – Landsnet 
Anna Hulda Ólafsdóttir –  Skrifstofa loftslagsþjónustu og aðlögunar  

Fundarstjórn: Helgi Þór Ingason 

Umræðuefni: 

  • Hverjar eru mikilvægustu innviðaáhættur Íslands? 
  • AMOC: hernaðarlegt/stefnumótandi mikilvægi án öfgahræðsluáróðurs 
  • Hvernig lítur ábyrg aðlögun út? 

Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.

Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.

Fara efst