Geðheilbrigðisvika HR
Í tilefni alþjóða geðheilbrigðisdagsins þann 10. október næstkomandi verður Geðheilbrigðisvika HR haldin í áttunda sinn. Boðið verður upp á tvö áhugaverð erindi, annað um leiðir til að eiga í farsælum samskiptum og hitt um áhrif umhverfis á líðan og heilsu. Erindin verða eingöngu í streymi og eru öll hvött til að horfa. Að auki verður nemendum HR boðið upp á sérstakan hádegisfyrirlestur um frestun.
- Mánudagur 7. október kl 12:00 – M104
- „Ég fresta þessu í fyrramálið“ Hagnýtar leiðir til að takast á við frestun
- Bergsveinn Andri Halldórsson og Guðmundur Kári Þorgrímsson
Erindi sérstaklega miðað að nemendum HR. Bergsveinn og Guðmundur, meistaranemar í klínískri sálfræði við HR og starfsnemar hjá sálfræðiþjónustu skólans munu flytja fræðsluerindi um frestun. Í erindinu verður kafað ofan í hvað liggur að baki þeirrar hegðunar og af hverju fólk frestar verkefnum gegn betri vitund. Fjallað verður um þá sálfræðilegu þætti sem valda frestun, áhrif hennar á daglegt líf og hagnýt ráð til að draga úr frestun.
- Þriðjudagur 8. október kl 12:00 - í streymi
- Undir yfirborðinu – leiðir til að eiga í farsælum samskiptum
- Auður Friðriksdóttir og Eva Rós Gunnarsdóttir
Auður og Eva, sálfræðingar hjá sálfræðiþjónustu HR, leiða saman hesta sína og bjóða upp á erindi um farsæl samskipti. Í erindinu verður rætt um hvað skal hafa huga þegar við eigum í samskiptum við annað fólk og þá sérstaklega í þeim samskiptum sem okkur þykja krefjandi. Að auki munu þær koma með hagnýt ráð til að setja mörk og fara yfir hvernig við getum tekist við ágreining á farsælan hátt.
- Miðvikudagur 9. október kl 12:00 í streymi (Hlekkur kemur hingað inn)
- Áhrif umhverfis á líðan og heilsu
- Dr. Páll Jakob Líndal
Í erindinu verður fjallað um mikilvægi þess að fólk geti staðið undir sjálfu sér í dagsins önn og hvernig umhverfi okkar getur verið í hlutverki stuðningsfulltrúa við að lifa uppbyggilegu og heilsusamlegu lífi.
Páll er með doktorspróf í umhverfissálfræði frá Háskólanum í Sydney. Hann er sérfræðingur í mati á sálfræðilegum áhrifum umhverfis á heilsu og vellíðan, hvort um er að ræða náttúru eða byggt umhverfi. Páll hefur áralanga reynslu af skipulagsmálum og verkefnum er snúa að verndun byggingararfsins, auk þess að vinna að sálfræðilegum rannsóknum og hefur hefur um árabil verið ötull talsmaður þess að sálfræðileg sjónarmið fái sitt rými í hönnunar- og skipulagsferlum og lögð sé ríkari áhersla á samspil fólks og umhverfis.
Páll á og rekur ráðgjafar- og rannsóknarfyrirtækið ENVALYS ásamt Hannesi Högna Vilhjálmssyni prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavik, þar sem áhersla er lögð á að innleiða umhverfissálfræði og þrívíddartækni inn í skipulags- og hönnunarverkefni.
Þá er Páll einnig forstöðumaður viðbótarnáms á meistarastigi í umhverfissálfræði við Háskólann í Reykjavík, kennir umhverfissálfræði við Háskóla Íslands og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, auk þess að vera fyrirlesari og markþjálfi.
Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.
Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.