Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Geðheilbrigðisvika HR 2026

Sítengd en aftengd í heimi tækninnar
5. október, 12:15 - 9. október, 12:45
Háskólinn í Reykjavík
Skrá í dagatal

Geðheilbrigðisvika Háskólans í Reykjavík

Í tilefni Alþjóða geðheilbrigðisdagsins þann 10. október verður Geðheilbrigðisvika HR haldin í tíunda sinn 5.-9. október.

Þema vikunnar er „Sítengd en aftengd í heimi tækninnar“ og verður sjónum beint að áhrifum snjalltækja og skjánotkunar á líðan, samskipti og daglegt líf.  

Snjalltæki eru orðin ómissandi hluti af lífi okkar. Við vinnum, lærum, eigum í samskiptum og leitum upplýsinga í gegnum skjáinn. Þau gera lífið auðveldara á margan hátt og geta veitt okkur ánægju - en hvað kostar þessi stöðuga tenging okkur?  

Nemendaráðgjöf HR, í samstarfi við sálfræðideild, býður upp á fjölbreytta og áhugaverða viðburði dagana 5.-9. október. Tvö erindi verða í opnu streymi þar sem fjallað verður um ólíkar hliðar sítengingar. Í fyrra erindinu verður rætt um áhrif tækninnar á félagsleg tengsl og einmanaleika. Seinna erindið fjallar um hagnýtar leiðir til að skapa heilbrigðari venjur í kringum skjánotkun. 

Að auki verður nemendum HR boðið upp á sérstakan hádegisfyrirlestur þar sem fjallað verður um hvernig tæknin getur haft áhrif á athygli okkar og hvað við getum gert til að ná betri fókus í námi og daglegu lífi.  

Dagskrá Geðheilbrigðisviku 2026
- Sítengd en aftengd í heimi tækninnar 

Mánudagur 5. október
12:15-12:45  

Hagnýt ráð til að bæta einbeitingu og athygli í námi 
Lísa Hafliðadóttir, meistaranemi í klínískri sálfræði og starfsnemi hjá Nemendaráðgjöf HR 

Erindi flutt í stofu Ú201  

Flest okkar kannast við að setjast niður til að læra og vera komin í símann örfáum mínútum síðar. Í erindinu verður skoðað hvernig tæknin togar í athygli okkar og hvað við getum gert til að ná stjórninni aftur. Farið verður yfir hagnýtar leiðir til að efla og viðhalda einbeitingu, bæði í námi og daglegu lífi. Erindið er sérstaklega miðað að háskólanemum.  

Þriðjudagur 6. október
12:15-12:45 

Félagsleg tengsl og einmanaleiki  
Auður Friðriksdóttir, sálfræðingur hjá Nemendaráðgjöf HR 

Manneskjan er félagsvera og eru félagsleg tengsl ein af grunnþörfum okkar. Þegar félagsleg tengsl skortir eða þau mæta ekki þörfum okkar getur einmanaleiki fylgt í kjölfarið. Í erindinu verður sambandið milli félagslegra tengsla, einmanaleika og tækninnar skoðað. Sjónum verður beint að samfélagsmiðlum, tölvuleikjum og gervigreind, og velt upp að hve miklu leyti tæknin hjálpar okkur að mynda og viðhalda þeim tengslum sem við þurfum á að halda, og hvenær hún gæti gert hið gagnstæða. Tæklar tæknin einmanaleika á hjálplegan hátt? 

Miðvikudagur 7. október
12:00-13:00 

Nýtt rými, ný þjónusta, ný tækifæri 
Opið hús: Háskólaklíník sálfræðideildar og Nemendaráðgjöf HR 

Úranus 1. hæð, til hliðar við bókasafnið 

Nemendaráðgjöf HR hefur flutt starfsemi sína í nýtt og betra rými þar sem Háskólaklíník sálfræðideildar HR mun von bráðar einnig hefja starfsemi sína. Þau tímamót munu skapa ný tækifæri til þjálfunar meistaranema í klínískri sálfræði við HR og efla jafnframt þjónustu við nemendur skólans. 

Við bjóðum starfsfólki og nemendum að koma saman í hádeginu og fagna þessum tímamótum saman. Stutt kynning verður á einingunum og gefst gestum tækifæri til að skoða nýja rýmið. Boðið verður upp á léttar veitingar.  

Öll velkomin. 

Fimmtudagur 8. október
12:15-12:45 

Hagnýt ráð varðandi skjánotkun 
Hanna Steinunn Steingrímsdóttir, klínískur atferlisfræðingur og dósent við sálfræðideild HR  

Erindi í streymi - Opið öllum 

Snjalltækin eru orðin órjúfanlegur hluti af daglegu lífi flestra. Í erindinu verður fjallað um hvernig við getum öðlast beti yfirsýn á eigin skjánotkun og skapað heilbrigðar venjur í kringum snjalltæki, með sérstakri áherslu á snjallsímann. Farið verður yfir hagnýtar leiðir sem fullorðið fólk getur nýtt sér til að draga úr ómarkvissri skjánotkun, minnka truflanir og taka meðvitaðri ákvarðanir um hvenær og hvernig snjalltækin eru notuð.  

Vinsamlegast athugið að á viðburðum Háskólans í Reykjavík (HR) eru teknar ljósmyndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi HR. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á ru.is eða með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@ru.is.

Please note that at events hosted at Reykjavík University (RU), photographs and videos are taken which might be used for RU marketing purposes. Read more about this on out ru.is or send an e-mail: personuverd@ru.is.

Fara efst